Atvinnulíf

Sjö góð ráð fyrir hundaeigendur í fjarvinnu

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Heiðrúnu Villu Ingadóttur hundaatferlisfræðingur og eigandi Hundaþjálfunar segir hunda næma á líðan eigenda sinna en þeir geta líka hjálpað til við að gera þessa óvenjulegu tíma bærilegri.
Heiðrúnu Villu Ingadóttur hundaatferlisfræðingur og eigandi Hundaþjálfunar segir hunda næma á líðan eigenda sinna en þeir geta líka hjálpað til við að gera þessa óvenjulegu tíma bærilegri. Vísir/Aðsent

Það þekkja það allir sem hafa átt hund að þeir geta orðið kvíðnir, stressaðir og liðið illa ef eitthvað er. Þeir þurfa líka athygli frá eigendum sínum, eru félagsverur en þurfa „afskaplega einfalda hluti“ til að verða hamingjusamir að sögn Heiðrúnar Villu Ingudóttur hundaatferlisfræðings.

 „Ekki fá samviskubit að loka hundinn af hluta úr degi, því eitt af því mikilvægasta sem þarf að kenna heimilishundum er að vera einir og sáttir við það þegar eigandinn þarf að fara,“ segir Heiðrún Villa aðspurð um góð ráð fyrir hundaeigendur sem nú eru í fjarvinnu. Því já, það eru ekki aðeins börnin sem trufla heldur líka besti vinurinn. 

Heiðrún Villa Ingadóttir á og rekur Hundaþjálfun.is. Hún segir að ýmiss vandamál geti skapast þegar eigandi hundsins er óvænt mikið heima.

„Þó að hundurinn hafi alltaf gaman af því að hafa þig nálægt þá getur það skapað ýmis vandamál ef maður er mikið heima,“ segir Heiðrún Villa og bætir við „Sem dæmi má nefna að hundurinn getur orðið of háður eiganda sínum sem getur síðan skapað vandamál við aðskilnað.

Þá segir Heiðrún Villa hunda næma á líðan eigenda sinna.

„Einnig skynja hundar breytingu á rútínu og mögulega stress og kvíða eigandans og því mikilvægt að gera samveruna uppbyggilega og jákvæða fyrir alla aðila.“

Heiðrún Villa bendir þó á að það sé líka hægt að nýta þennan óvenjulega tíma og nýta hluta af honum til að bæta samskiptin við hundinn. 

Hér eru sjö góð ráð fyrir hundaeigendur í fjarvinnu eða eru í mikilli heimaviðveru þessa dagana vegna kórónuveirunnar.

1. Ein af mínum uppáhalds skipunum er skipunin að BÍÐA og er hún sett upp þannig að hundurinn fer á þægilegt bæli og á að vera þar þangað til hann heyrir nafnið sitt. Þessi skipun er á svo margan hátt frábær bæði til að æfa stjórn á hvatvísi og til að auka yfirvegun og hlýðni til eigandans. 

Æfðu þessa skipun og þegar hundurinn hefur áttað sig á henni setur þú upp áreiti sem hundurinn er vanur að æsast upp við eins og til dæmis bank/dyrabjalla eða börn að leika með bolta eða matur á stofuborðinu. 

Fáðu hundinn til að halda skipun þrátt fyrir áreitið og hrósaðu þegar þú kallar hann úr skipun og hann hefur staðið sig vel að halda skipuninni þrátt fyrir áreitið.

2. Sömu skipun er hægt að nota til að senda hundinn í hálfgerða hugleiðslu/afstressun. Sendu hundinn í BÍÐA skipun á þægilegu bæli eða stað sem þér finnst henta og hundurinn á að vera þar þangað til hann nær alveg að slaka sér niður og jafnvel sofna. 

Þessi æfing hefur góð áhrif á stress- þröskuldinn hans og ef hann er stressuð týpa skal gera þessa æfingu daglega. 

Eins með þig, farðu í hugleiðslu með hundinum þínum, slakaðu á með honum hvort sem þú hugleiðir eða tekur smá daghvíld. Rannsóknir hafa sýnt mikilvægi þess að róa hugann og er það mitt álit að það er sérstaklega mikilvægt á þessum krefjandi tímum. 

Þú getur líka nýtt hluta tímans meðan hundurinn er í þessari skipun og unnið í tölvunni á meðan þú fylgist með honum.

Heiðrún Villa leiðbeinir lesendum hvernig hægt er að senda hundinn í hálfgerða hugleiðslu og afstressun sem er síðan tilvalin stund til að nýta tímann í tölvunni á meðan.Vísir/Getty

3. Hreyfing skiptir máli fyrir þig og hundinn. Finndu leið til að koma hreyfingu í rútínuna. Það getur gert heilmikið að gera æfingar heima ef þú treystir þér ekki út, eða taka stuttan göngutúr, spjalla við sjálfan sig og hundinn, horfa upp í himininn og reyna að finna traust á lífið, temja sér jákvæðni og þakklæti. 

Taktu þér tíma fyrir hreyfingu milli þess sem þú sinnir öðrum verkum eins og vinnu eða heimilisstörfum.

4. Allskonar trixæfingar eru ekki bara skemmtilegar heldur styrkja þær samband eiganda og hunds. Miðlar eins og Youtube geyma endalausar hugmyndir um hvernig má kenna allskyns skemmtilegar æfingar og einnig eru til forrit eins og forritið Puppr-Dog Training & Tricks sem sýna skref fyrir skref skemmtilegar æfingar og trix að gera með hundinum.

5. Fyrir hunda sem verða háða eigenda sínum er mikilvægt að kenna þeim að vera frá þó eigandinn er heima, eins og til dæmis með BÍÐA skipun í stutta stund reglulega yfir daginn eða setja þá í búrið/svæðið/herbergið sitt einhvern af þeim tíma sem þeir ættu að vera einir heima. 

Rútína skiptir máli og því gott að reyna að halda henni að einhverju marki ef stefnan er síðan að skilja hundinn eftir þegar vinnan færist aftur af heimilinu. 

Ekki fá samviskubit að loka hundinn af hluta úr degi, því eitt af því mikilvægasta sem þarf að kenna heimilishundum er að vera einir og sáttir við það þegar eigandinn þarf að fara.

6. Ef þú ert að vinna heima er mikilvægt að halda góðri rútínu sem hentar þér og hundinum og fáðu hundinn til að hjálpa þér að leiða hugann við eitthvað annað en vinnuna inn á milli ef álagið er mikið. Þá eru göngutúrar eða trix þjálfun tilvalin afþreying.

7. Hundurinn þinn er í raun kærleikur í loðboltaformi, ekki gleyma því. Hann er fyrirmynd og sýnir þér svo margt varðandi lífið. 

Hann þarf afskaplega einfalda hluti til að vera hamingjusamur og það sem skiptir máli er núna, og að gera líðandi stund ánægjulega.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×