Raungengi krónunnar hækkar hægt og sígandi 9. desember 2010 11:27
Raungengi íslensku krónunnar heldur áfram að hækka hægt og sígandi. Í nóvember hækkaði það um 0,4% í nóvember síðastliðnum á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Þessi þróun er í samræmi þróunina á nafngengi krónunnar á sama tímabili, sem og verðlags.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þannig var nafngengi krónunnar 0,5% hærra í nóvember en í október m.v. vísitölu meðalgengis. Á sama tíma stóð vísitala neysluverð nánast í stað en hún hækkaði um einungis 0,05% í nóvember frá fyrri mánuði og var verðbólgan hér á landi þar með minni en hún var í okkar helstu nágrannalöndum. Þetta kemur fram í tölum sem Seðlabanki Íslands birti fyrr í vikunniFrá áramótum talið hefur raungengið á ofangreindan mælikvarða hækkað um rúm 15% en það hefur hækkað samfellt milli mánaða, að júlí undanskildum, síðan í nóvember á síðasta ári. Þessi þróun endurspeglar hækkun nafngengis krónunnar á sama tímabili en nafngengi krónunnar er nú tæpum 15% hærra en það var í upphafi þessa árs. Gildi raungengisins á ofangreindan mælikvarða er nú komið í 77,8 stig sem er það hæsta sem það hefur verið síðan í febrúar á síðasta ári.„Að okkar mati er raungengið enn nokkur undir því gengi sem tryggir jafnvægi á utanríkisviðskiptum þjóðarbúsins. Teljum við því líklegt að það komi til með að hækka enn frekar þegar fram líða stundir. Á það enn nokkuð í land með að ná sínu langtímameðaltali," segir í Morgunkorninu.„Að meðaltali hefur gildi raungengisins verið 97 stig á síðustu þremur áratugum, eða um fjórðungi hærra en gildi þess var í nóvember síðastliðnum. Þó er ljóst að ómögulegt er að segja til um hversu langan tíma það tekur raungengið að ná því gildi sem tryggir umrætt jafnvægi, sem og hvort og að hve miklu leiti sú hækkun mun eiga sér rót í hækkun á nafngengi krónunnar og innlendu verðlagi ásamt launum."
Mest lesið Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira