Norska skýrslan: Villandi ársreikningar og falskur hagnaður Landsbankans Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. desember 2010 21:00 Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, voru bankastjórar Landsbankans.
Ársreikningur Landsbankans fyrir árið 2007 var rangur og villandi á margvíslegan hátt, hagnaður var falsaður og eigið fé var gróflega ofmetið, að því er fram kemur í skýrslu norska fyrirtækisins LYNX Advokatfirma, en fréttastofa hefur skýrsluna undir höndum. Skýrslan, sem dagsett er 2. nóvember á þessu ári, var unnin fyrir embætti sérstaks saksóknara. Skýrsluhöfundar telja að lánveitingar til tengdra aðila hafi ekki verið réttilega gefnar upp í skýrslum til Fjármálaeftirlitsins og þá hafi ranglega verið staðið að upplýsingagjöf um stórar áhættuskuldbindingar. Landsbankinn hafi þannig veitt gríðarlega háar fjárhæðir til tengdra aðila, fjárhæðir sem voru óeðlilega háar með hliðsjón af eigin fé bankans. Afar stór hluti þessara lána hafi aldrei verið greiddur og lánveitingarnar hafi valdið bankanum miklu tjóni. Skuldabréfaútgáfa upp á 75 milljarða króna á árinu 2008 Skýrsluhöfundar telja að Landsbankinn hafi ekki staðið rétt að upplýsingagjöf um atriði sem voru nátengd skilyrðum fyrir starfsleyfi bankans og að ef upplýsingagjöf hefði verið rétt hefði það sennilega falið í sér afturkallað starfsleyfi. Samkvæmt skýrslu LYNX gaf Landsbankinn út skuldabréf upp á 75 milljarða króna og 800 milljónir evra á fyrri hluta ársins 2008. Skýrsluhöfundar telja að ef fjárfestar hefðu fengið réttar upplýsingar um hvernig bankinn braut gegn skilmálum starfsleyfis síns hefði það án nokkurs vafa haft áhrif á skuldabréfaútgáfu og söfnun innlána erlendis í Bretlandi og Hollandi. Þannig hafi bæði sparifjáreigendur í viðskiptum við Landsbankann og fjárfestar sem keyptu skuldabréf bankans fengið rangar og villandi upplýsingar. Óásættanleg vinnubrögð PwC Skýrsla LYNX er einnig mikill áfellisdómur fyrir endurskoðendur bankans, PricewaterhouseCoopers en skýrsluhöfundar telja að vinnubrögð fyrirtækisins hafi verið óásættanleg. Þannig telja höfundar að PwC hafi búið yfir upplýsingum sem hefðu átt að koma í veg fyrir að fyrirtækið áritaði ársreikning bankans fyrir árið 2007. Þannig hafi PwC átt að hafa aðgang að minnispunktum lánanefndar bankans og upplýsingar um niðurfærslu á lánum til Eimskips, Primus og Icelandic Group. Þannig hafi endurskoðendunum hjá PwC átt að vera ljóst að lán til umræddra félaga væru verðminni en uppgjör bankans sýndi. Eðlilegar varúðarafskriftir vegna ætlaðs útlánataps, þ.e niðurfærsla lána í ársreikningi, hefðu átt að eyða út stórum hluta 40 milljarða króna hagnaðar Landsbankans fyrir árið 2007, að því er fram kemur í skýrslunni. Þá hafi PwC verið fullkunnugt um að Björgólfur Thor Björgólfsson hafi átt meira en 20 prósenta óbeinan eignarhlut í Landsbankanum á árinu 2007 en samt hafi fyrirtækið sætt sig við að ekki væru gefin upp lán Landsbankans til hans og tengdra aðila. Í skýrslunni kemur fram að Vignir Rafn Gíslason og Þórir Ólafsson, endurskoðendur hjá PwC, hafi staðfest með undirritun sinni hinn 28. janúar 2008 að endurskoðun þeirra á ársreikningi Landsbankans fyrir árið 2007 hafi verið í samræmi við alþjóðlegar reglur. Ársreikningurinn hafi þannig verið unninn í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla og gefi rétta og eðlilega mynd af stöðu bankans.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Sjá meira