Íslenskur sproti talinn besta fjárfestingartækifærið í Evrópu Magnús Halldórsson skrifar 16. október 2012 09:00 Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Invest, sem er stærsti hluthafi Remake á eftir framkvæmdastjóranum og stofnandanum, Hilmi Ingi Jónssyni, sem er með Þórði á myndinni.
Íslenska hátæknifyrirtækið ReMake Electric stóð uppúr alþjóðlegu mati á evrópska orkubúnaðar og -tækjageiranum sem helsta fjárfestingartækifæri í Evrópu árið 2012. Matið fór fram hjá markaðs- og ráðgjafarisanum Frost & Sullivan sem starfar í 6 heimsálfum, en verðlaunin eru hluti af árlegu „Best Practices Awards" frá Frost & Sullivan í Evrópu. „Við erum í skýjunum! Þetta eru fyrst og fremst verðlaun fyrir framsýni okkar með vörur sem skapa mikið virði fyrir notendur," sagði Hilmir Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. „Þetta er líka glæsileg viðurkenning fyrir íslenska nýsköpun á alþjóðlegum mælikvarða." „ReMake Electric býður búnað sem bætir upplýsingargildi við hefðbundin raföryggisbúnað og enn frekar býður fyrirtækið upplýsingagjöf til eftirlits og vöktunar á raforku í byggingum," útskýrir Vinod Cartic, matsmaður hjá Frost & Sullivan. „Sá eiginleiki að samhæfa nýja tækni við núverandi raföryggiskerfi til þess að mæta þörfum viðskiptavinarins hefur verið lykilatriði í árangri ReMake Electric við að aðgreina sig á markaði," er haft eftir Cartic í fréttatilkynningu vegna verðlaunanna. Verðlaunin taka mið af gæðum fyrirtækja í vöruúrvali, markaðs- og vaxtarmöguleikum ásamt rekstrarstjórnun. Verðlaunaafhendingin fór fram í Jumeirah Carlton Tower hóteli í London og tóku Hilmir Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri og Marcel Mendes da Costa, viðskiptastjóri ReMake, við þeim. Ásamt ReMake voru fyrirtæki á borð við Siemens, ABB, Sennheiser og Hewlett Parkard sem unnu til verðlauna fyrir sína nýsköpun, samkeppnishæfni og framsýni en ReMake Electric skarar fram úr í heildarlausnum til greiningar og eftirlits á raforkunotkun og álagi. ReMake er stýrt af fjölhæfu stjórnunarteymi, og að mati Frost & Sullivan hefur fyrirtækið skapað rétta blöndu af sérþekkingu og reynslu, og gæði og styrkleika í fjárfestum félagsins, segir í tilkynningu. Helstu hluthafar í ReMake Electric eru stofnandinn Hilmir Ingi Jónsson 42,8%, Eyrir Sprotar 26,2% og Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins 18%, en aðrir hluthafar eru starfsmenn og minni fjárfestar. „Viðskiptavinir okkar á Íslandi eru að ná frábærum árangri með vörunum okkar og nú kynnum við vörunar á El Massan sýningunni í Stokkhólmi 24. - 25. október," sagði Hilmir Ingi. „Áherslan okkar núna er að byggja upp spennandi markaðs- og söluteymi til að taka næstu skref í okkar magnaða ævintýri." ReMake Electric hannar, framleiðir og markaðssetur nýja mæli- og tölvubúnaði auk hugbúnaðar fyrir raforkueftirlit til að ná fram sparnaði og nýtni í raforkunotkun, og til að viðhalda árangri. Heildarlausnir fyrirtækisins hafa hlotið viðurkenningar áður og verðlaun fyrir nýsköpun og tækniyfirburði, að því er segir í tilkynningu. Þess eru dæmi að viðskiptavinir hafa náð yfir 40% orkusparnaði með því að nýta lausnir ReMake Electric í að uppgötva yfirálag á einstökum rafmagnsgreinum sem síðan hjálpar við að fyrirbyggja skemmdir og eldhættu.
Mest lesið Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Viðskipti erlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Viðskipti innlent Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Viðskipti innlent Fleiri fréttir Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Nói Siríus aftur í innlendri eigu Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Sjá meira