Viðgerð á jarðstreng tók fjóra mánuði Kristján Már Unnarsson skrifar 16. maí 2014 12:30 Þykkum snjóalögum þurfti að ryðja burt áður en hægt var að grafa niður á strenginn. Mynd/Landsnet.
Viðgerð á jarðstreng á Þeistareykjum, sem bilaði í janúar 2014, lauk ekki fyrr en í síðustu viku. Ástæðurnar voru meðal annars þykk snjólög og frosthörkur. Málinu er lýst á heimasíðu Landsnets. Þar segir að umtalsvert lengri tíma taki að gera við jarðstreng en loftlínu við bestu skilyrði, hvað þá þegar veðurfar og snjóalög setja strik í reikninginn, eins og Landsnetsmenn segjast hafa fengið að reyna. Jarðstrengurinn, sem er 11,5 km langur, var lagður árið 2012 að Þeistareykjum. Hann er 66 kílóvolta og er fyrst um sinn ætlað að flytja vinnurafmagn inn á virkjunarsvæðið. Strengurinn var aðeins búinn að vera nokkra mánuði í rekstri þegar hann bilaði í byrjun ársins. Leit að biluninni tók allnokkra daga, meðal annars vegna erfðra veðurfarsskilyrða á Norðurlandi eystra og mikilla snjóalaga, segir Landsnet. Mikill tími fór í að leita að biluninni og að grafa strenginn upp.Mynd/Landsnet.Ástæða bilunarinnar reyndist vera galli í einangrun strengsins en það var hins vegar ekki ljóst á hve löngum kafla einangrunin væri gölluð. Blasti þá við að viðgerðarferlið gæti getið drjúgan tíma, bæði vegna tímafrekrar leitar við að kanna ástand einangrunarinnar og erfiðra aðstæðna en grafa þurfti hálfan annan metra gegnum snjóalög áður en hægt var að byrja að grafa strenginn upp.Jarðstrengurinn er 11,5 kílómetra langur og liggur að Þeistareykjum.Mynd/Landsnet.Frosthörkur ollu einnig vandræðum því ekki þykir óhætt að hreyfa strenginn ef frost fer undir fimm mínusgráður og hefði þurft talsverðar tilfæringar til að hita upp þann hluta hans sem þurfti að taka upp.Ákveðið var að bíða með viðgerð þar til drægi úr mestu vetrarhörkum þar sem ekki lá á að koma strengnum í notkun.Mynd/Landsnet.Þar sem ekki bráðlá á að koma strengnum aftur í gagnið var viðgerð frestað fram yfir páska í samráði við framleiðanda strengsins, meðal annars í þeirri von að þá hefðu snjóalög sjatnað og verstu frosthörkur gengið yfir. Það gekk eftir en töluverður snjór var þó enn á Þeistareykjasvæðinu og þurftu línumenn Landsnets að grafa um metra niður í gegnum fönn, áður en þeir gátu farið að kanna ástand strengsins á bilunarstaðnum.Viðgerð á jarðstrengnum lauk í síðustu viku.Mynd/Landsnet.Sérfræðingur frá strengframleiðandanum tók þátt í þeirri vinnu og í framhaldinu var svo gert við strenginn. Lauk þeirri vinnu með því að strengurinn var spennusettur á ný, aðfararnótt 9. maí.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira