Telur auðlegðarskattinn fara gegn stjórnarskrá Magnús Halldórsson skrifar 11. janúar 2013 10:05
Garðar Valdimarsson hrl. segir auðlegðarskattinn, sem lagður er á hreina eign einstaklinga yfir 75 milljónum og hjóna yfir 100 milljónum, fara gegn stjórnarskrá, einkum ákvæðum um eignarrétt. Hann telur Hæstarétt hafa gefið leiðgsögn í þessum efnum í dómsmáli árið 1958, þar sem deilt var um stóreignaskattinn svonefnda. Þetta kom fram í erindi sem Garðar hélt á skattadegi Deloitte á Grand Hóteli í gær. Auðlegðarskatturinn nemur 1,5 prósentum á hreina eign umfram 75 milljónir hjá einstaklingum, og tveimur prósentum á eign umfram 150 milljónir. Hjá hjónum nemur hann 1,5 prósentum á hreina eign umfram 100 milljónir og tveimur prósentum á hreina eign umfram 200 milljónir. Til viðbótar er síðan auðlegðarskattur sem lagður er á hlutafjáreign í fyrirtækjum, en þar er miðað við eignarhluti sem hlutfall af eigin fé. Garðar sagði í erindi sínu að reglurnar um auðlegðarskattinn, sem lagður var á árið 2009 og þá tímabundið, væru þær sömu eða sambærilegar þeim, sem Hæstiréttur hefði fjallað um í málinu árið 1958, og dæmt ósamræmanlegar stjórnarskrá. Ríflega 5.200 einstaklingar greiddu auðlegðarskatt 2011, samtals 8,3 milljarða króna í ríkissjóð.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent