FME blæs á athugasemdir Stafa 11. janúar 2013 08:07
Fjármálaeftirlitið (FME) gefur lítið fyrir þær athugasemdir sem lífeyrissjóðurinn Stafir hefur gert við úttekt eftirlitsins á starfsemi sjóðsins. Fjármálaeftirlitið segir m.a. að óvarlegt sé að fullyrða að engir fjármunir hafi tapast í tengslum við þau atriði sem eftirlitið gerði athugasemdir við. Á vefsíðu FME segir að vegna athugasemda Stafa lífeyrissjóðs og fjölmiðlaumfjöllunar undanfarið um athugun Fjármálaeftirlitsins á tilteknum þáttum í starfsemi lífeyrissjóðsins, vill Fjármálaeftirlitið leiðrétta eftirfarandi rangfærslur og misskilning: „Skýrsla Fjármálaeftirlitsins vegna málsins er á sjöunda tug blaðsíðna. Gagnsæistilkynning Fjármálaeftirlitsins sem birtist á vef stofnunarinnar sýnir samandregnar niðurstöður. Staða Stafa í óskráðum bréfum var bæði tilkomin vegna verðbréfa sem breyttust úr skráðum í óskráð og vegna óskráðra verðbréfa sem sjóðurinn fjárfesti í á árinu 2011. Saman ýtti leiðrétting verðbréfanna og fjárfestingin sjóðnum endanlega út fyrir lagaheimildir. Þegar tekið er mið af heildareignum sjóðsins á þessum tíma nema 0,7% tæpum milljarði króna. Fjármálaeftirlitið telur ekki vafa á að svo stór fjárfesting í einu lagi sé mikilsháttar fjárfestingarákvörðun og hefði betur verið tekin af fleiri en einum aðila. Athugasemdir Fjármálaeftirlitsins við lánveitingar Stafa lífeyrissjóðs voru m.a. vegna eftirfarandi atriða: Lánveiting var ekki í samræmi við lánareglur sjóðsins. Látið var viðgangast að veðskuldabréf til staðfestingar á eign sjóðsins var óundirritað. Lánveiting til framkvæmdastjóra vegna kaupa á bifreið, sem hann hafði til umráða í starfi sínu, var ekki í samræmi við lánareglur og hliðstæð lán stóðu ekki hinum almenna sjóðfélaga til boða. Fjármálaeftirlitið telur óvarlegt að fullyrða að engir fjármunir hafi tapast hjá sjóðnum í tengslum við þau atriði sem gerðar hafa verið athugasemdir við."
Mest lesið Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Fleiri fréttir Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Sjá meira