Krónan ekki verið veikari síðan um miðjan júní Haraldur Guðmundsson skrifar 11. september 2013 09:13 Veiking krónunnar fer út í verðlag. Mynd/ Vilhelm Gunnarsson
Gengi íslensku krónunnar hefur það sem af er septembermánuði lækkað um 1,3 prósent gagnvart meðaltali helstu viðskiptamynta. Evran fór á umræddu tímabili úr því að kosta 158,2 krónur í 160,4 krónur. Bandaríkjadalur fór úr því að kosta 119,8 krónur í 121,5 krónur. Greiningardeild Íslandsbanka greindi frá þessu í Morgunkorni bankans í gær. Þar segir að krónan hafi ekki verið veikari síðan um miðjan júní á þessu ári og að öll styrkingin sem varð á gengi hennar undir lok ágústmánaðar sé gengin til baka. Þrátt fyrir þessa lækkun síðustu daga hefur þróunin verið önnur en á sama tíma í fyrra. Um miðjan ágúst 2012 hóf krónan hraða veikingarhrinu og lækkun hennar gagnvart meðaltali helstu viðskiptamynta var 5,2 prósent um miðjan september 2012. Gengi krónunnar nú hefur veikst vegna styrkingarinnar undir lok ágústmánaðar en þegar horft er til gengisins um miðjan ágúst á þessu ári er staðan að mestu óbreytt. Greiningardeild Íslandsbanka reiknar með því að þessi mikla veiking krónunnar haustið 2012 muni ekki endurtaka sig með sama hætti í ár. „Minna er um afborganir erlendra lána aðila sem ekki eru með gjaldeyristekjur og árstíðarsveiflan í gjaldeyristekjum ferðaþjónustunnar er minni. Einnig má búast við meiri gjaldeyristekjum af sjávarafurðum þegar líður á haustið vegna aukins kvóta. Þá hefur haft áhrif að Seðlabankinn lýsti því yfir í maí síðastliðnum að hann hygðist verða virkari á gjaldeyrismarkaði á næstunni með það að markmiði að draga úr gengissveiflum,“ segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
Mest lesið Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Viðskipti erlent Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Orkan og Samkaup fá grænt ljós á sameiningu Viðskipti Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Sjá meira