Fannar, Nick og Arnar Freyr hafa aldrei tapað í lokaúrslitum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2009 13:28 Fannar Ólafsson hefur orðið Íslandsmeistari í öll 3 skiptin sem hann hefur verið í lokaúrslitum. Mynd/Stefán
Þrír leikmenn KR og Grindavík í lokaúrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla hafa aldrei tapað í lokaúrslitum. Þetta eru þeir Fannar Ólafsson hjá KR og Grindvíkingarnir Arnar Freyr Jónsson og Nick Bradford. Úrslitaeinvígi KR og Grindavíkur hefst í DHL-Höllinni klukkan 16.00 í dag. Arnar Freyr Jónsson varð Íslandsmeistari með Keflavík í öll fjögur skiptin sem hann komst í lokaúrslit með liðinu eða árin 2003, 2004, 2005 og 2008. Arnar Freyr hefur verið í sigurliði í 11 af 13 leikjum sínum í úrslitaeinvíginu. Arnar Freyr er líka eini leikmaðurinn í úrslitaeinvíginu sem getur orðið Íslandsmeistari annað árið í röð. Fannar Ólafsson hefur orðið Íslandsmeistari með bæði KR og Keflavík og unnið titilinn í öll þrjú skiptin sem hann hefur spilað til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Fannar lyfti Íslandsbikarnum þegar KR vann titilinn fyrir tveimur árum og hann vann hann einnig með Keflavík 1999 og 2004. Nick Bradford var Íslandsmeistari með Keflavík bæði tímabilin sem hann spilaði þar. Keflavík vann 6 af 8 leikjum í lokaúrslitum með Bradford innanborðs árin 2004 og 2005. Hér eru einungis teknir með þeir leikmenn sem hafa spilað í tveimur lokaúrslitum eða fleiri en nokkrir leikmenn til viðbótar unnu titilinn í fyrsta og eina skiptið sem þeir voru í lokaúrslitum. KR-ingarnir Jón Arnór Stefánsson (2000), Jakob Örn Sigurðarson (2000), Brynjar Þór Björnsson (2007), Darri Hilmarsson (2007), Skarphéðinn Freyr Ingason (2007), Ólafur Már Ægisson (2000), Guðmundur Þór Magnússon (2000) og Ellert Arnarson (2007) urðu síðan allir Íslandsmeistarar í fyrsta og eina skiptið sem þeir voru með í lokaúrslitum.
Dominos-deild karla Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Sjá meira