Tíðin ágæt fyrir fjárvana frumkvöðla Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar 7. apríl 2010 05:00 Frumkvöðlar eiga mun auðveldara um vik að leita sér fjármagns nú en áður, að sögn framkvæmdastjóra og helsta skipuleggjanda fjárfestaþingsins Seed Forum. MYND: GVA „
Það er fyrst nú eftir hrunið að ég tek eftir því að áhugi fjárfesta á sprotafyrirtækjum er að aukast. Þau leituðu eftir svo lágum upphæðum áður að fáir litu við þeim," segir Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks - nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, sem blæs til fjárfestaþings undir merkjum Seed Forum á föstudag. Þetta er ellefta fjárfestaþing Seed Forum þar sem frumkvöðlar kynna fyrirtæki sín og hugmyndir fyrir fjárfestum. Þing sem þetta er haldið tvisvar á ári, í apríl og október. Á þinginu nú koma fram fulltrúar sjö fyrirtækja, fimm íslenskra og tveggja norskra. Þau eru flest eins til tveggja ára þótt eldri fyrirtæki leynist á milli. Belgingur er yngsta sprotafyrirtækið, um eins árs. Það þróar nákvæmari veðurspár en sést hafa. Rannsóknarvinna hefur staðið yfir lengur. Eyþór segir nýsköpun hafa verið setta í salt hér í allt að sex ár og því vanti sprotafyrirtæki á vaxtarstigi. Sú þróun skrifast á bankana, sem sugu til sín mikið af fólki fyrir hrun og almennt hagstæðari fjárfestingarkosti í öðru en áhættusömum kaupum í sprotafyrirtækjum. Nú horfir til betri vegar, að mati Eyþórs. Hann bendir á að fjárfestingarkostir séu færri nú en áður og fjármagn þurfi að leita í annan farveg. Þá hafa stjórnvöld og opinberar stofnanir stutt mjög við nýsköpun eftir bankahrunið, svo sem með skattalegum ívilnunum. Hann segir aðgengi að fjármagni hafa skánað strax í fyrrahaust og bendir á að eitt fyrirtækjanna sem kynnt var á þinginu í október í fyrra hafi landað samningi yfir kvöldverði síðar um kvöldið. Á meðal kunnra sprotafyrirtækja sem hafa farið á flug eftir fjárfestakynningu Seed Forum eru tölvuleikjafyrirtækin CCP og Gogogic auk tískuvörufyrirtækisins E-Label og tæknifyrirtækisins Fjölblendis.
Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Sjá meira