Ástæða til að hafa áhyggjur af gengislánum á ný Þorbjörn Þórðarosn skrifar 2. mars 2017 19:00
Dósent í hagfræði segir talsverða áhættu fylgja því að opna á gengislán fyrir þá sem standast greiðslumat en segir erfitt að viðhalda fortakslausu banni á slík lán vegna sjónarmiða um samningsfrelsi. Hann segir að hægt sé að halda áhættunni í skefjum ef Seðlabankinn og önnur stjórnvöld grípa inn í. Fjármála- og efnahagsráðherra freistar þess nú í þiðja sinn að leggja fram frumvarp um gengistryggð lán til þeirra sem hafa tekjur í krónum en slík lán voru bönnuð eftir hrun. Efnislega sama frumvarp var tvívegis lagt fram í fjármálaráðherratíð Bjarna Benediktssonar og stöðvað í bæði skiptin af efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis undir forystu Frosta Sigurjónssonar. Í síðara skipti klofnaði nefndin og framsóknarmenn mynduðu meirihluta með stjórnarandstöðuþingmönnum í nefndinni. Frosti hafði áhyggjur af áhrifum þessa frumvarps á gengis- og fjármálastöðugleika og vildi fortakslaust bann við þessum lánum. Lilja Alfreðsdóttir flokkssystir Frosta gagnrýndi nýja frumvarpið harðlega í fréttum okkar í gær. „Við erum að hugsa um heimilin í landinu. Við viljum ekki að þau beri áhættuna, heildin, af áhættu sem fáir einstaklingar eru að taka. Svo má ekki gleyma því að þeir sem taka þessa áhættu, það er allt í lagi að þeir geri það sjálfir en þeir gera það líka á kostnað heildarinnar. Ef þeir loka stöðum á mjög skömmum tíma þá veikist gengi krónunnar mjög hratt. Flestöll lán eru verðtryggð þannig að þetta bitnar á öllum heimilum í landinu,“ sagði Lilja. Fréttastofan leitaði til Ásgeirs Jónssonar dósents í hagfræði við HÍ. Er áhætta fólgin í því fyrir hagkerfið að opna á þetta á ný? „Já, já það getur verið. Ef það myndast stór staða eins og var hérna áður, eins og fyrir hrun þegar sextíu prósent fjármögnunar fyrirtækja var í erlendri mynt eða gengisbundin. Það er hins vegar erfitt að banna svona hluti því það ríkir samningsfrelsi. Annað, í svona litlu opnu hagkerfi þar sem mikil fylgni er á milli gengisins og verðbólgu, þá er ekkert svakalega mikill munur á því að vera með gengislán og verðtryggð lán,“ segir Ásgeir. Líka ágreiningur um sanngirnisrökin Ef að eitt þúsund heimili á Seltjarnarnesi og Garðabæ myndu taka svona lán og það myndi byggjast upp 50 milljarða króna staða í svona lánasamningum í hagkerfinu væri það ekki hættulegt fyrir alla hina sem eru bara með sína einföldu krónusamninga? Um þetta er deilt. „Í heildarsamhengi hlutanna þá verðum við alltaf að fylgjast með þessari stöðu í hagkerfinu. Þetta verður hluti af því að fylgjast með fjármálastöðugleika, að fylgjast með því hversu há erlend lán eru og hvernig þau hafa þróast,“ segir Ásgeir. Hann telur fullnægjandi að Seðlabankinn fylgist með á hliðarlínunni. Seðlabankinn fær valdheimildir og stjórntæki til þess að takmarka lánveitingar af þessu tagi til að verja fjármálastöðugleika en í frumvarpinu segir: „Seðlabanka Íslands er heimilt, í þágu fjármálastöðugleika og að fengnu áliti fjármálastöðugleikaráðs, að setja lánastofnunum reglur um útlán tengd erlendum gjaldmiðlum til aðila sem ekki eru varðir fyrir gjaldeyrisáhættu.“ Vandi fylgir hins vegar vegferð hverri og dæmin sanna að eftirlitsaðilar bregðast stundum allt of seint við. Besta dæmið er íslenskt hagkerfi fyrir 2008. Málið snýst ekki bara um þetta því einnig er deilt um sanngirnisrök og er sú deila af öðrum meiði og meira pólitísk. Krafa frumvarpsins um greiðslu- og lánshæfismat mun leiða til þess að tekju- og eignaháir einstaklingar munu geta tekið þessi lán en ekki meginþorri almennings. Þingmenn Framsóknarflokksins hafa einnig gert athugasemdir við frumvarpið á þessari forsendu.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira