Innlent

Ferðast í stað þess að halda jól og borða á Mandi í kvöld

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Jenný, sextán ára, og Hrafnkell, þrettán ára, stóðu vaktina í Hjálpræðishernum í dag. 
Jenný, sextán ára, og Hrafnkell, þrettán ára, stóðu vaktina í Hjálpræðishernum í dag. 

Systkinin Jenný Una og Hrafn Óli Eiríksbörn halda ekki jól. Þeim finnst það allt í lagi því þau fá að ferðast þau um heiminn með mömmu sinni í staðinn. Heimsfaraldur setti raunar strik í reikninginn þetta árið þannig að þau mæðgin ákváðu að gerast sjálfboðaliðar hjá Hjálpræðishernum - sem þeim þykir virkilega skemmtilegt.

„Mömmu finnst stress að eyða pening og þannig, þannig að við ferðumst í staðinn en útaf Covid þá getum við það ekki, þannig að við ákváðum bara að koma hingað,” segir Jenný.

Þau hafa ferðast víða en Spánn og Svíþjóð standa upp úr hjá þeim. Þau segjast miklu frekar vilja ferðast en að halda jólin.

„Við fáum alveg einhverja pakka frá frænku og frænda og ömmu og afa,” segir Jenný. „Við eigum líka bæði afmæli í desember,” bætir Hrafnkell við, en hann varð þrettán ára í gær.

 „Þetta er ekkert mikill munur, nema bara að það er ekki jólamatur eða jólatré heima,” segir Jenný.

Vinir þeirra sýna jólaleysi þeirra skilning, þó einhverjum þyki það skrítið.

 „Ég er kölluð svona jólahatari, eða Grinch, því mér finnst jólin ekkert það skemmtileg. Þetta er bara ekkert mikið mál hjá okkur. Þeim finnst þetta frekar skrítið en eru ekkert á móti því, þau skilja þetta alveg,” segir Jenný. Vinir Hrafnkels kippa sér minna upp við þetta.

„Þeim er alveg sama,” segir hann.

Systkinin stóðu vaktina í Hjálpræðishernum í dag og ætla að enda daginn á sýrlenska veitingastaðnum Mandi. Þau taka bæði fram að þeim þyki ánægjulegt að hafa getað gert gagn í dag og ætla að halda áfram sjálfboðaliðastörfum.

Fréttastofa leit við í Hjálpræðishernum í dag en þar voru hátt í þrjú hundruð manns. Rætt er við Hannes Bjarnason, kaptein Hjálpræðishersins, í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×