Atvinnulíf

Mega skila notuðum nærfötum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Bandaríski nærfataframleiðandinn Big Favorite hvetur viðskiptavini til að senda sér notaðan nærfatnað úr þeirra línu til baka eftir notkun.
Bandaríski nærfataframleiðandinn Big Favorite hvetur viðskiptavini til að senda sér notaðan nærfatnað úr þeirra línu til baka eftir notkun.

Fataiðnaðurinn færist smátt og smátt í umhverfisvænni framleiðslu og sífellt bætast við þeir framleiðendur sem taka á móti flíkum til að endurvinna. Nú hafa notuð nærföt bæst við því bandaríska vörumerkið Big Favorite hefur tilkynnt að viðskiptavinir geti skilað til sín notuðum nærfötum til endurvinnslu.

Big Favorite er nýtt fyrirtæki á sviði nærfataframleiðslu. Vörumerkið er þó endurnýtt því Big Favorite var fyrst stofnað af afa framkvæmdastjórans fyrir níutíu árum síðan. Þegar afabarnið, Elanor Turner, stofnaði fyrirtækið ákvað hún að endurvekja þetta gamla fyrirtækjanafn afa síns og leggja þannig línurnar fyrir skýra stefnu um sjálfbærni og endurvinnslu. 

Til þess að endurvinna nýjar flíkur úr notuðum nærfötum, er markmiðið að viðskiptavinir sendi til fyrirtækisins notuðu nærfötin. Neytendum er lofaður fullur trúnaður og nafnleynd.

Að sögn Turner hendir meðalmaður í Bandaríkjunum um 37 kílóum á ári af notuðum fatnaði. Áætlar fyrirtækið að um 15% af þessari þyngd felist í nærfatnaði, stuttermabolir meðtaldir. Þá segir Turner áskorun fyrirtækisins ekki aðeins felast í því að endurnýta flíkurnar fyrir sjálfbæra framleiðslu heldur ekki síður að fá neytendur til að taka þátt. Því enn á eftir að reyna á það hvort fólk er tilbúið til að senda frá sér notaðan nærfatnað.

Í umfjöllun Fastcompany segir að ýmsir framleiðendur hafi nýverið opnað verslanir með notaðar vörur úr sínum línum. Levis er nefnt sem dæmi. Í umfjöllun segir að ólíklegt sé að slík leið verði farin með notuð nærföt. Því verði spennandi að sjá hvernig neytendur muni taka í verkefnið með Big Favorite.

Að endurvinna nýjar flíkur úr notuðum nærfötum er þó ekki nýtt af nálinni. Þannig taka mörg endurvinnslufyrirtæki við notuðum nærfötum sem nýtt eru af mörgum framleiðendum. Big Favorite er hins vegar dæmi um nýtt vörumerki sem tilkynnir frá upphafi að ætlunin þeirra sé að endurnýta þegar seldar flíkur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×