Heimsmarkmiðin

Utanríkisráðuneytið vekur athygli á átaki gegn kynbundnu ofbeldi

Heimsljós

Utanríkisráðuneytið verður baðað roðagylltri birtu næstu sextán daga til að vekja athygli á alþjóðlegu átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Sömuleiðis hafa sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og París verið lýst upp í roðagylltum lit.

Átakið hefst í dag, á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gagnvart konum og mun ljúka þann 10. desember, sem er alþjóðlegi mannréttindadagurinn.

Markmið átaksins er að knýja á um afnám á kynbundnu ofbeldi og hvetja til opinnar umræðu og vitundarvakningu meðal almennings sem getur leitt til frekari aðgerða. Í ár er lögð áhersla á að bregðast þurfi við auknu ofbeldi gagnvart konum í kjölfar heimsfaraldursins.

Heimsfaraldurinn ýtir undir ýmsa áhættuþætti sem auka hættuna á ofbeldi gagnvart konum, svo sem matarskort, atvinnuleysi, efnahagslegt óöryggi og félagslega einangrun. Því hefur aldrei verið mikilvægara en nú að beina sjónum að þessu alvarlega vandamáli sem UN Women hafa fjallað um sem skuggafaraldurinn

Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn

Ísland leggur sitt af mörkum í þessari baráttu og hefur lagt mikla áherslu á jafnréttismál í viðbragðsáætlunum vegna COVID-19 í þróunarsamvinnu í samstarfi við hin Norðurlöndin. Ísland er jafnframt meðal forysturíkja sem leiða aðgerðabandalag um upprætingu á kynbundnu ofbeldi í tengslum við verkefni UN Women Kynslóð jafnréttis (e. Generation Equality Forum), en aðgerðabandalaginu er ætlað að þróa tillögur að áhrifamiklum og umbreytandi aðgerðum sem hafa það að markmiði að uppræta kynbundið ofbeldi.

Frá sendiráði Íslands í París.

Utanríkisráðuneytið vill jafnframt vekja athygli á rafrænni málstofu um konur, frið og öryggi, sem haldin er á morgun af tengslaneti norrænna kvenna í sáttarmiðlun á Íslandi, í samstarfi við Jafnréttisskóla GRÓ (GEST) og utanríkisráðuneytið.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×