Atvinnulíf

Brjálað að gera í kjölfar Covid og ný störf að verða til

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Fv.: Katrín S. Óladóttir Hagvangi, Thelma Kristín Kvaran Intellecta, Jensína K. Böðvarsdóttir Vinnvinn.
Fv.: Katrín S. Óladóttir Hagvangi, Thelma Kristín Kvaran Intellecta, Jensína K. Böðvarsdóttir Vinnvinn. Vísir/Vilhelm

Það er erfiðara að komast í atvinnuviðtal í dag því margir eru um hituna fyrir hvert auglýst starf. En ekki eru öll störf auglýst og svo virðist sem mikið sé að gera hjá ráðningaþjónustum þótt atvinnuleysi sé mikið. Viðmælendur segja störf í ólíkum geirum líkleg til að verða í boði í vetur, s.s. í upplýsingatækni, viðburðarstjórnun, hjá nýsköpunarfyrirtækjum, við fjárhagsendurskipulagningu og fleira.

Í dag og á morgun fjallar Atvinnulífið á Vísi um atvinnuleysi og ráðningar í kjölfar kórónufaraldurs. Í þessari annarri grein af þremur var leitað til þriggja ráðningaþjónustufyrirtækja og spurt um stöðuna nú og horfurnar framundan.

Spurt var:

„Er staða í ráðningum núna svipuð, betri eða verri en þú bjóst við í kjölfar Covid og getur þú nefnt tvær til þrjár tegundir starfa sem þú telur að eftirspurn verði eftir fólki í vetur?“

Margt breyst og ný störf að verða til

Jensína K. Böðvarsdóttir, Vinnvinn.Vísir/Vilhelm

Jensína K. Böðvarsdóttir hjá Vinnvinn:

Heilt yfir hafa atvinnugeirar eins og ferðaþjónusta, hótel og veitingastaðir, og önnur starfsemi tengd ferðaiðnaði sem hafa orðið hvað verst úti í kjölfar Covid, ekki mikið leitað til fyrirtækja eins og okkar hjá Vinnvinn og þess vegna hefur hrun í þeim geira ekki heldur komið niður á okkar starfsemi. Það er þó gaman að segja frá því að við erum búin að ráða í eina framkvæmdastjórastöðu í ferðaiðnaðinu eftir að við fórum í loftið.

Það eru margir að leita sér að starfi og klárlega sjáum við mikið af umsóknum frá frambærilegu fólki úr ferðageiranum og almennt fólki með farsæla starfsreynslu að baki.

Hluti af þeim störfum sem við veitum fyrirtækjum ráðgjöf við að manna eru ekki auglýst og þar af leiðandi ekki sjáanleg en engu að síður atvinnutækifæri og þess vegna er mikilvægt að einstaklingar í atvinnuleit skrái sig í gegnum heimasíðuna okkar. Þá vinnum við töluvert mikið með fyrirtækjum sem auglýsa í eigin nafni og leita til okkar sem ráðgjafa til að halda utan um ráðningarferlið og hafa umsjón með því.

Hvernig fólk vinnur hefur breyst mikið á tímum Covid og þannig eru störfin líka að breytast og ný störf að verða til. Ég vona að við eigum eftir að sjá sveigjanleika hjá fyrirtækjum þegar við komumst út úr Covid, að ábyrgð starfsmanna hvernig og hvar hann vinni verkefnin sé meiri en var fyrir Covid. Það að geta unnið einhverja daga heima getur verið mikill tímasparnaður og aukið afköst.

Það er erfitt að spá í framtíðina og hvaða störf verði vinsæl í vetur en við hjá Vinnvinn spáum eftirspurn eftir sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn til dæmis í greiningarvinnu ýmiskonar, störf tengd nýsköpun og þróun, þjónustustjórnun og þar sem reynir á stafræna hæfni og upplýsingatækni,“ segir Jensína.

Jafn margar ráðningar og í fyrra

Katrín S. Óladóttir, Hagvangi.Vísir/Vilhelm

Katrín S. Óladóttir hjá Hagvangi:

„Ef við berum saman fjölda ráðninga miðað við sama tíma í fyrra erum við nokkuð á pari. Fyrir marga kann það að koma á óvart ef við hugsum til aðstæðna í kjölfar Covid sem lagðist þungt á atvinnulífið frá miðjum mars síðastliðnum. Þá vissum við ekkert hvað væri í vændum í okkar rekstri og hver sviðsmyndin yrði þegar horft yrði yfir árið.

En fljótlega upp úr maí mánuði fóru hlutirnir aftur í gang. Þetta sýnir okkur styrk fjölmargra fyrirtækja sem ótrauð héldu áfram með sín áform, hagræðingar, endurskipulagningu og nýráðningar sem fylgdu í kjölfarið.

Breytt umhverfi kallaði á ný vinnubrögð og tækni og við brugðumst hratt við því. Við getum því verið ánægð hvernig til hefur tekist þrátt fyrir mjög erfitt ár á margan hátt.

Það er fyrirséð að talsverð eftirspurn verði eftir starfsfólki í ferða- og veitingageiranum ef spár ganga eftir varðandi komu bóluefnis sem rætt er um að komi fyrr en seinna. Án efa mun það hafa mikil áhrif á fjölda þeirra sem eru án atvinnu í dag og komu úr þessum geira. En einnig er líka gleðilegt að sprota- og nýsköpunarfyrirtæki telja sig þurfa á auknum mannskap að halda.

Þá má einnig benda á að fyrirtæki þurfa í auknum mæli á að halda reynslu og þekkingu af fjárhagslegri endurskipulagningu í kjölfar Covid og mögulega verður einnig aukin eftirspurn í reynslu og þekkingu á sviði viðburðastjórnunar og stafrænnar umbreytingar. Svo við erum bjartsýn á komandi ár,“ 

segir Katrín.

Brjálað að gera

Thelma Kristín Kvaran, Intellecta.Vísir/Vilhelm

Thelma Kristín Kvaran hjá Intellecta:

„Rétt í upphafi fyrstu bylgju Covid dró aðeins úr eftirspurn eftir starfsfólki, enda var mikil óvissa framundan. Það gekk þó hratt yfir og höfum við sjaldan haft eins mikið að gera eins og nú, en það má segja að það hafi komið okkur mest á óvart. 

Þess má geta að það hafa bæst til liðs við okkur tveir nýir ráðgjafar í ráðningum á árinu og fjórir til viðbótar í önnur störf hjá fyrirtækinu.

Staðan í dag er þannig að margir frambærilegir aðilar eru í atvinnuleit. Við höfum því verið að fá töluvert fleiri umsóknir um flest störf. 

Það er til dæmis gott framboð af hæfu fólki með fjármála-, verk- og tæknifræði bakgrunn, þar sem fjármálastofnanir og verkfræðistofur hafa fækkað fólki undanfarin misseri. Eftirspurn eftir fólki með verk- og tæknifræði bakgrunn hefur þó líka verið töluverð. 

Líkurnar fyrir umsækjandann að vera boðaður í viðtal eru því miður verri almennt séð vegna þess fjölda sem sækir um hverja stöðu. Það eru því fleiri sem sitja eftir með sárt enni en áður.

Það hefur verið mikið að gerast innan upplýsingatækni- og hugbúnaðargeirans og því meiri líkur að fá starf við hæfi á því sviði. Mikið af þeim breytingum sem unnið er að innan fyrirtækja og stofnana snýr að hagræðingu sem meðal annars verður til vegna nýrra hugbúnaðarlausna – og það er á þeim vettvangi sem öflugt hugbúnaðarfólk kemur inn í myndina. Við spáum því að mikil fjölgun verði á framboði um þess konar störf á næstu misserum. 

Einnig hafa fyrirtæki og stofnanir hagrætt undanfarið vegna faraldursins, skipuritum breytt og stjórnendum fækkað. Það er því okkar mat að mikil eftirspurn verði eftir öflugum stjórnendum þegar ástandið batnar,“ 

segir Thelma.


Tengdar fréttir

„Lykilatriðin núna eru að nýta tímann þar til bóluefnið er komið“

Fjöldi einstaklinga á atvinnuleysisbótum jókst um 100% í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum. Birna Guðmundsdóttir deildarstjóri Gagnagreiningar Vinnumálastofnunar gerir ráð fyrir að janúar og febrúar gætu orðið erfiðir mánuðir. Hér má sjá nýjar tölur sem Vinnumálastofnun tók saman fyrir Atvinnulífið á Vísi.

Uppsagnir framundan: „Af hverju ég?“

Fólk sem lendir í uppsögnum fer í gegnum nokkur stig tilfinninga í kjölfarið. Allt frá afneitun yfir í reiði sem beinist að yfirmanninum og sorg.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×