Nýir Peugeot bílar með sjö ára ábyrgð Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 18. nóvember 2020 07:01 Peugeot 3008 Tengiltvinn (PHEV)
Brimborg býður nú alla nýja Peugeot bíla með víðtækri sjö ára ábyrgð auk átta ára ábyrgðar á drifrafhlöðu rafbíla, samkvæmt fréttatilkynningu frá Brimborg. Peugeot 508 Tengiltvinn bíll (PHEV). Nýir rafbílar og lengri ábyrgð Árið 2020 hefur verið viðburðaríkt fyrir Peugeot á Íslandi. Tveir nýir hreinir rafbílar og einn tengiltvinn rafbíll hafa verið kynntir og nú býður Brimborg alla nýja Peugeot bíla með víðtækri sjö ára verksmiðjuábyrgð og átta ára ábyrgð á drifrafhlöðu raf- og tengiltvinn rafbíla. Ábyrgðin gildir fyrir fólks- og atvinnubíla. Ábyrgðin er í boði á bílum keyptum af Brimborg sem koma í reglulega þjónustu skv. ferli framleiðanda í allt að sjö ár eða allt að 140 þús. km. Ávinningur af reglulegum þjónustuskoðunum og lengri verksmiðjuábyrgð er aukin gæði, meira öryggi, lægri rekstrarkostnaður, hærra endursöluvirði og hraðari endursala. Peugeot 5008. Forsendur ábyrgðar Greinargóðar upplýsingar um skilmála ábyrgðar nýrra Peugeot hjá Brimborg er finna í rafrænni eigandahandbók ásamt viðauka sem söluráðgjafi fer vel yfir við afhendingu nýrrar bifreiðar til viðskiptavinar. Við þjónustueftirlit er fylgt stöðluðu ferli framleiðanda sem tryggir að bíllinn er ávallt í topp standi. Þjónustuverkstæði Brimborgar eða aðrir viðurkenndir þjónustuaðilar Brimborgar framkvæma reglubundna þjónustu á 12 mánaða eða 15.000 km fresti hvort sem kemur á undan km. fjöldi eða tími og er þjónustueftirlitið á föstu verði. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Peugeot geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.
Vistvænir bílar Mest lesið Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Erlent Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Erlent Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Erlent