Bílar

Citroën með 7 ára ábyrgð

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
C5 Aircross
C5 Aircross

Nýir Citroën bílar frá Brimborg eru nú með sjö ára ábyrgð og átta ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð fyrir fólksbíla og sendibíla.

Citroën hefur verið í fararbroddi tækninýjunga í bílgreininni alla tíð í yfir 100 ára sögu sinni og býðst nú með sjö ára víðtækri verksmiðjuábyrgð á nýjum fólksbílum og sendibílum, segir í fréttatilkynningu frá Brimborg. Auk þess býður Citroën átta ára ábyrgð á drifrafhlöðu rafbíla. Ábyrgðin er einnig háð akstri og takmarkast við akstur að hámarki 140 -160 þúsund km, hvort sem kemur á undan, km fjöldi eða tími.

Citroen Ë C4

Ábyrgð drifrafhlöðu miðast við að hleðslugetan fari ekki undir 70% á átta árum. Ábyrgðin er í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda um þjónustuskoðanir. Regluleg þjónusta og víðtæk verksmiðjuábyrgð nýrra Citroën bíla frá Brimborg tryggir meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu.

Forsendur ábyrgðar

Greinargóðar upplýsingar um skilmála ábyrgðar Citroën er finna í rafrænni eigandahandbók ásamt viðauka sem söluráðgjafi fer vel yfir við afhendingu nýrrar bifreiðar. Brimborg fylgir stöðluðu þjónustueftirliti framleiðanda sem tryggir að bíllinn er ávallt í topp standi. Þjónustuverkstæði Brimborgar eða viðurkenndir þjónustuaðilar Brimborgar á landsbyggðinni framkvæma reglubundna þjónustu á 12 mánaða eða 15.000 km fresti hvort sem kemur á undan km fjöldi eða tími og er þjónustueftirlitið á föstu verði.

Viðgerðir sem falla undir ábyrgð Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Citroën geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×