Atvinnulíf

Jafnréttismálin í útrás til Evrópu og Bandaríkjanna

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé.
Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé. Vísir/Vilhelm

„Við erum að horfa á Evrópu og Bandaríkin sem spennandi kost til þess að byrja með, um leið og Covid verður ekki fyrirstaða lengur,“ segir Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé framkvæmdastjóri Empower um þær fyrirætlanir félagsins um að fara með jafnréttismálin í útrás. Þórey er einn af fyrirlesurum Heimsþings kvenleiðtoga, Woman Leaders Global, sem nú er haldið í þriðja sinn. Að sögn Þóreyjar eru jafnréttismál ekki aðeins mannréttindi heldur eitt stærsta efnahagsmál framtíðarinnar. „Eftir Metoo hreyfinguna er mikil þörf á að taka á jafnréttismálum innan stofnana og fyrirtækja og stjórnendur eru að leita að réttu leiðunum,“ segir Þórey.

Í Atvinnulífinu á Vísi í gær og í dag er fjallað um Heimsþing kvenleiðtoga út frá forsendum stjórnenda og atvinnulífs.

Þjónusta Empower byggir á Jafnréttisvísinum sem Þórey þróaði og leiddi hjá Capacent á sínum tíma. Að sögn Þóreyjar felur Jafnréttisvísirinn alls herjar vitundavakningu í jafnréttismálum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Nefnir Þórey sem dæmi að um þessar mundir vinni Empower að innleiðingu Jafnréttisvísisins með Alþingi. Þá segir hún stjórnir huga að jafnréttismálum í auknum mæli.

„Stjórnir fyrirtækja eru farnar að átta sig á því að stjórnendahópurinn þarf að endurspegla samfélagið til þess að fyrirtæki og stofnanir tengi við sína viðskiptavini og þá þýðir ekkert að hafa engar konur,“ segir Þórey.

Þórey segir jafnrétti hafa góða möguleika á útrás og nefnir sem dæmi að Empower muni halda tvær alþjóðlegar ráðstefnur um jafnréttismál haustið 2021.

Algengar birtingarmyndir sem fólk áttar sig ekki á

En getur þú nefnt dæmi um kynbundna fordóma sem eru algengir á vinnustöðum, án þess kannski að fólk geri sér grein fyrir því?

„Ómeðvitaðir kynbundnir fordómar eru mjög ráðandi í menningu fyrirtækja og stofnana. Þeir sem beinast gegn konum birtast gjarnan með þeim hætti að til þess sé ætlast að þær sinni heimilisstörfum á vinnustaðnum, jafnvel þótt þær séu í stjórnunarstöðu.

Einnig eru konur oft dæmdar harðar, stundum útilokaðar frá fundum og á fundum.

Það er oftar gripið fram í fyrir þeim bæði af körlum og konum.

Konur fá oft frekar stöðuhækkanir eftir að hafa þurft að sanna sig á meðan að karl fær stöðuhækkun af því að hann þykir efnilegur.

Þetta hefur auðvitað með það að gera sem er eitt helsta vandamálið; stereotýpurnar um stjórnendur en hugmyndir okkur um stjórnendur eru því miður enn mjög karllægar og birtist það helst í því að enginn kona er forstjóri í fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöllina. Af hverju ætli það sé? Jú líklega vegna þessara hugmynda,“ segir Þórey.

Að sögn Þóreyjar felst mesta breytingin í innleiðingu Jafnréttisvísisins í því að menning vinnustaðarins sé rýnd og henni breytt. Fyrst þarf þó að átta sig á hverju þurfi að breyta.

„Ef við ætlum að breyta menningunni þá þurfum við fyrst að skilgreina nákvæmlega áskoranir til þess að geta breytt þeim. Það er lykilatriði,“ segir Þórey. Hún segir Jafnréttisvísinn styðjast við sannreynda aðferðarfræði sem inniheldur fjóra fasa. Hjá þeim hefjist greiningin á því sem félagið kallar 360°greiningaramma Empower.

„Við tökum á öllum helstu þáttum með sérstaka áherslu á menningu. Við kynnum svo þessar niðurstöður fyrir stjórnendum og öllu starfsfólki, sem er gríðarlega mikilvægt. Þar fá allir tækifæri til þess að taka þátt í vinnustofu, áskoranirnar sem birtast í greiningunni eru ræddar og komið er með hugmyndir að lausnum,“ segir Þórey og bætir við: 

Oft er upplifun karla og kvenna af menningunni mjög ólík en þarna náum við yfirleitt að komast yfir þann þröskuld að skilja menninguna á mismunandi hátt og getum þá verið samstíga í næstu skrefum.“

Þá segir Þórey næstu skref vera að vinna með úrbótarverkefnin og markmið sett til þriggja ára. „Í innleiðingunni er farið af stað með verkefni og fræðslu sem hjálpa til við að ná markmiðunum,“ segir Þórey.


Tengdar fréttir

„Eigum samt enn langt í land“

Hanna Birna Kristjánsdóttir stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga segist afar stolt af þeim árangri sem Ísland hefur náð í jafnréttismálum. Staðan sé þó enn ekki nógu góð og hindranir meðal annars þær að enn hvíla heimilisstörf og barnauppeldi mun þyngra á konum en körlum.

Konur taka við af konum sem framkvæmdastjórar

Konur eru líklegri til að taka við konum sem framkvæmdastjórar en þróunin er hæg segir Brynja Baldursdóttir meðal annars í viðtali um greiningu Creditinfo á kynjahlutföllum stjórnenda í Framúrskarandi fyrirtækjum.

Mikil vonbrigði, dapurlegt, hryggilegt og hundfúlt

Dapurlegar, hryggilegar og hundfúlar niðurstöður segja viðmælendur Atvinnulífsins á Vísi um 13% hlutfall kvenna sem framkvæmdastjórar í Framúrskarandi fyrirtækjum. Fjármagns- og fyrirtækjaeigendur þurfa að taka ákvörðun um breytingar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×