Makamál

Flestir forvitnir um fyrri ástir og ævintýr maka

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Í síðustu viku gerðu Makamál könnun og spurðu lesendur Vísis hvort þeir vildu vita um fyrri ástarmál makans. 
Í síðustu viku gerðu Makamál könnun og spurðu lesendur Vísis hvort þeir vildu vita um fyrri ástarmál makans.  Getty

Spurning síðustu viku tengdist mismunandi þörf okkar á því hversu mikið við viljum vita um fortíð maka okkar í ástarmálum. 

Þegar fólk sem byrjar saman eftir unglingsárin eru yfirgnæfandi líkur á því að báðir aðilar eigi sér einhverja forsögu í ástarmálum. Hvort sem um ræðir fyrri sambönd eða bólfélaga er misjafnt hverju fólk vill deila eða hvað fólk vill vita.

Samkvæmt niðurstöðunum er meirihluti lesenda Vísis forvitinn um fyrri ástarmál makans en rúmlega þrjúþúsund manns tóku þátt í könnuninni. 

Nákvæmari niðurstöður er hægt að sjá hér fyrir neðan. 

* Niðurstöður

Já - 31%

Já, en bara ef það var alvarlegt - 11%

Já, en fer eftir aðstæðum - 18%

Nei - 40%

*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir

Spurning vikunnar: Hefur þú áhuga á swing-senunni?

Í vikunni tóku Makamál viðtal við íslenska konu sem sagði frá reynslu sinni af swing-senunni á Íslandi. Hún sagði swing-samfélagið stærra en fólk gerði sér grein fyrir og töluverða leynd hvíla yfir því.

Einhleypan: Glatað að vera einhleyp á tímum Covid

Einhleypa vikunnar er Þóranna Friðgeirsdóttir. Hún segir lífið vera skemmtilegt ævintýri þó að Covid faraldurinn hafi ekki verið að hjálpa ástarlífinu neitt sérstaklega. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×