Heimsmarkmiðin

Börn meðal fallinna í sprengjuárásum í Sýrlandi

Heimsljós
Barnaheill - Save the children

Fjögur sýrlensk börn og tveir starfsmenn samstarfssamtaka Barnaheilla – Save the Children létust í vikunni í sprengjuárásum í Idlib héraði í Sýrlandi. „Við erum harmi slegin yfir þessum hræðilegu tíðindum,“ segir Kolbrún Pálsdóttir verkefnastjóri erlendra verkefna hjá Barnaheillum. Samtökin hafa vegna árásanna lokað tveimur bólusetningarmiðstöðvum í Idlib en þar hafa fimm hundruð börn verið bólusett á hverjum mánuði.

Fjögurra ára stúlka lést á leið sinni í skólann í bænum Ariha þegar hún varð fyrir sprengjuárás. Tvö börn til viðbótar voru drepin í bænum Kafraya og það fjórða, tíu ára drengur, í borginni Idlib. Tugir annarra barna særðust. Grunnskóli í bænum Kafraya, sem er rekin af samstarfssamtökum Barnaheilla - Save the Children í Sýrlandi, varð fyrir sprengjuárás, en öll 150 börnin í skólanum náðu að flýja.

Þrátt fyrir að enginn í skólanum hafði látist í árásinni var einn nemandi í skólanum drepinn á heimili sínu ásamt bróður sínum. Sprengja lenti á heimili hans og þar létust foreldrar hans og bróðir.

Sonia Kush, viðbragðsstjóri Barnaheilla – Save the Children í Sýrlandi segir þetta vera afar sorglegar fréttir. „Börn létust og önnur upplifðu ógnvekjandi atburði í morgunsárið, þegar þau bjuggust við hefðbundnum skóladegi. Það er skelfilegt að sjá skóla og borgaraleg svæði verða fyrir árásum. Skólar eiga að veita börnum öryggi. Óbreyttir borgarar halda áfram að bera hitann og þungann af árásum sem þessum. Við hvetjum alla stríðsaðila að ganga úr skugga um að börn og óbreyttir borgarar séu verndaðir og þar með virða alþjóðleg mannúðarlög.“

Að sögn Kolbrúnar hafa aðstæður fólks í Idlib héraði verið mjög slæmar en undanfarna tvo daga hefur rignt gríðarlega mikið og meðal annars valdið flóðum og töluverðri eyðileggingu í níu flóttamannabúðum,

„Barnaheill – Save the Children kalla eftir því að átökum verði hætt strax en undanfarnar vikur hafa átök stigmagnast á nokkrum svæðum í norðvestri. Allir aðilar verða að virða alþjóðleg mannúðarlög og vernda skóla, sjúkrahús og aðra mikilvæga borgaralega innviði gegn árásum. Börn eru sérstaklega berskjölduð fyrir áhrifum sprengivopna og stríðsaðilar ættu að leggja sig fram við að vernda þau,“ segir hún.

Kolbrún bendir á að börn séu enn að láta lífið þrátt fyrir samþykkt ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að stríðsátökum verði hætt á heimsvísu vegna kórónaveirufaraldursins. Hún segir að í stað vopnahlés stigmagnist átök í Sýrlandi sem hindri baráttuna gegn útbreiðslu faraldursins.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×