Lífið

Stjörnulífið: Haustið fer vel af stað

Stefán Árni Pálsson skrifar
Haustið að fara vel í landann.
Haustið að fara vel í landann. Myndir/Instagram

Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.

Þórunn Antonía og Hjalti Haraldsson héldu upp á afmæli dóttur sinnar um helgina.

„Fjölskyldur eru allskonar. Húrra fyrir Freyju Sóley 6 ára! Vinátta samstaða og kærleikur í fyrirrúmi.“

 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skellti sér í fjallgöngu um helgina í góðra vina hópi.

View this post on Instagram

🔝

A post shared by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) on

Vík­ing­ur Heiðar Ólafs­son fékk á dögunum af­henta gull­plötu fyr­ir sölu á plöt­unni Johann Sebastian Bach. Plat­an hef­ur selst í yfir 2.500 ein­tök­um á Íslandi frá því hún kom út árið 2018 og fær því viður­kenn­ingu sem er staðfest af Fé­lagi hljóm­plötu­fram­leiðenda.

Eliza Reid forsetafrú mætti á frumsýningu á Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu. Arnmundur Ernst leikari, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona og tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson stilltu sér upp á mynd með forsetafrúnni. 

 Dansdrottningin Ástrós Traustadóttir birti fallega skvísumynd. 

View this post on Instagram

🤎✨

A post shared by Astros Traustadottir (@aastros) on

Ebba Guðný fékk að leika lítið aukahlutverk í Eurogarðinum og rifjar upp þann dag í tilefni frumsýningarinnar í gærkvöldi. 

 Sunneva Einars tók skemmtilega speglasjálfu.

View this post on Instagram

imagine

A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir 🦋 (@sunnevaeinarss) on

 Ísdrottningin Ásdís Rán dugleg í ræktinni Búlgaríu. 

 Leikkonan Kristín Pétursdóttir með fallega sunnudagsmynd. 

View this post on Instagram

sundays🥱

A post shared by Kristín Pétursdóttir (@kristinpeturs) on

Björn Ingi passar loks í Stjörnutreyjuna sem Guðni Th Jóhannesson, forseti Íslands, gaf honum fyrir mörgum árum. 

View this post on Instagram

Hér kemur svolítil skemmti- og dæmisaga um að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Þessa ágætu treyju færði vinur minn mér í 25 ára afmælisgjöf árið 1998. Við lögðum þá báðir stund á sagnfræði, hann hafði lokið við meistaragráðu og hugði á doktorsnám en eitthvað var ég rólegri í tíðinni; sinnti félagsmálum sem formaður sagnfræðinema, stúdentaráðsliði og stjórnarmaður í Félagsstofnun stúdenta ásamt fjölmiðlastörfum. Þessi vinur minn sinnti um skeið stundakennslu í Háskólanum þegar þarna var komið sögu og Stjörnumaðurinn sem hann var (og er) gat ekki annað en gefið mér sérmerkta Stjörnutreyju með aldri afmælisbarnsins sem treyjunúmer á bakinu. Síðan eru liðin mörg ár. 22 ár nánar tiltekið. Lengst af komst ég ekkert í þessa treyju enda of þéttur og þessi vinur minn bjó erlendis og lauk sínu námi og lagði stund á fræðin. Svo fann ég hana við tiltekt um daginn og komst leikandi í hana (enda talsvert léttari á mér). Skemmtilegt því ég er einmitt aftur kominn í sagnfræðina og stjórnmálafræðina eftir langt hlé til að klára þessa blessuðu gráðu, meðal annars eftir hvatningu frá þessum gamla vini sem nú er orðinn forseti Íslands. Segið svo að það sé ekki allt hægt.

A post shared by Björn Ingi Hrafnsson (@bjorningi) on

 Rúrik Gíslason hefur verið að ferðast um landið síðustu daga. 

Kærastan Nathalia að sjálfsögðu með í för.

Samfélagsmiðlastjarnan Katrín Kristinsdóttir birti fallega sumarmynd um haustið.

View this post on Instagram

🌸🌸 - #reykjavik #iceland #ginamyway

A post shared by KATRÍN KRISTINSDÓTTIR (@katrinkristinsdottir) on

Þær Nadía Sif og Lára Clausen halda áfram að vera virkar á Instagram. Þær vöktu heimsathygli eftir að hafa farið upp á hótelherbergi með ensku landsliðsmönnunum Mason Greenwood og Phil Foden. 

Tískudrottningin Fanney Ingvarsdóttir er komin 37 vikur á leið. 

Elísabet Gunnars kom til Íslands til þess að mæta á frumsýninguna. Alba dóttir hennar býr á Íslandi eins og er þar sem hún fer með hlutverk í sýningunni. Mamman útgrátin yfir frumraun hennar á stóra sviðinu.

Andri Snær Magnason frumsýndi mynd sína Þriðji póllinn á RIFF.

 Páll Óskar fór á kostum með Siggu Beinteins og Ingó í þættinum Í kvöld er gigg á Stöð 2.

Pattra Sriyanonge heldur áfram að njóta lífsins í Tyrklandi.

View this post on Instagram

Casual Sunday🦩

A post shared by Pattra S (@trendpattra) on

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×