Atvinnulíf

Það þarf ekki nema einn starfsmann til að skemma hópinn

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Samkvæmt rannsóknum er neikvæð hegðun starfsfólks meira smitandi en jákvæð.
Samkvæmt rannsóknum er neikvæð hegðun starfsfólks meira smitandi en jákvæð. Vísir/Getty

Það þarf ekki nema eitt skemmt epli til að smita út frá sér og eyðileggja þau öll. Það sama gildir um starfsmannahópa og teymi. Það þarf ekki nema einn til að skemma móralinn og liðsheildina. Þessi einstaklingur getur reyndar gert meira en að skemma móralinn því það þarf ekki nema einn starfsmann til að auka á kæruleysi, mistök eða misferli innan starfsmannahópa eða smita frá sér hegðun á vinnustaðnum sem áður var ekki þekkt. T.d. varðandi stundvísi, þátttöku á fundum, almennt viðmót við samstarfsaðila og fleira.

Í umfjöllun Harvard Business Review er greint frá niðurstöðum rannsóknar sem sýna að svo smitandi getur einn neikvæður starfsmaður verið að ekki einu sinni rótgróin og heilbrigð fyrirtækjamenning nær að sporna við þessum áhrifum. Það þarf hreinlega ekki nema einn til!

Þá segir að sama hvernig á málin er litið, er það alltaf dýrkeypt fyrir vinnustaði að grípa ekki í taumana. Skiptir þá engu þótt viðkomandi starfsmaður sé duglegur eða skili ýmsu góðu af sér í starfi. Fórnarkostnaðurinn sem hlýst af því hvað hann skemmir útfrá sér er alltaf meiri en ávinningurinn af starfi viðkomandi.

En hvernig getur einn starfsmaður smitað svona mikið út frá sér?

Samkvæmt rannsóknum er það almennt þannig að neikvæð hegðun eða viðhorf er meira smitandi á meðal starfsfólks en jákvæð. Áskorun stjórnenda felst hins vegar í því að reyna að draga úr þessum smitáhrifum þannig að neikvæð hegðun smiti sem minnst frá sér.

Þar skiptir fjölbreytileiki teyma máli því eitt af því sem fram kom í umræddri rannsókn er að einsleitir hópar eru líklegri en aðrir til að taka upp sömu hegðun eða viðhorf í samanburði við hópa sem eru ólíkir innbyrðis. 

Rannsóknin fór þannig fram að rýnt var í breytingar á hegðun og viðhorfi starfsfólks útibúa  fjármálafyrirtækja sem höfðu sameinast. Mælingar voru gerðar fyrir og eftir sameiningu. Þá var rýnt í kvartanir viðskiptavina og mistök starfsfólks. Sýndu niðurstöður meðal annars að líkurnar á að starfsfólk geri mistök aukast um 37% ef viðkomandi starfsmaður fer að vinna með vinnufélaga sem er gjarn á að vera kærulaus eða gera oft mistök. 

Þá var það skoðað hvort smitáhrif neikvæðrar hegðunar eins starfsmanns voru minni í samruna útibúa þar sem engin breyting var í stjórnendahópi. Svo reyndist ekki vera.

Segja forsvarsmenn rannsóknarinnar því að jafnvel stálheiðarlegt fólk verði fyrir neikvæðum áhrifum á samstarfi við einstakling sem sýnir af sér neikvæða hegðun eða viðhorf og telst þá vera þetta eina skemmda epli.


Tengdar fréttir

Ekkert grín að vera óstundvís

Óstundvísi er hvimleiður vani en kannski gera margir sér ekki grein fyrir því að það getur verið mun erfiðara að venja sig af óstundvísi en virðist í fyrstu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×