Fótbolti

Sjáðu markið ótrúlega hjá Hólmberti á móti Belgum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hólmbert Aron Friðjónsson fagnar hér markinu sínu.
Hólmbert Aron Friðjónsson fagnar hér markinu sínu. AP/Francisco Seco

Hólmbert Aron Friðjónsson kom íslenska landsliðinu óvænt yfir á móti besta landsliði heims.

Hólmbert Aron Friðjónsson fékk tækifærið í byrjunarliði íslenska landsliðsins á móti Belgum og var ekki lengi að minna á sig.

Hólmbert Aron kom íslenska liðinu yfir í 1-0 á tíundu mínútu með skoti fyrir utan teig.

Hólmbert Aron fékk líka algjört dauðafæri strax á fimmtu mínútu leiksins þegar hann skallaði boltann yfir mark Belga eftir sendingu frá Birki Bjarnasyni.

Hólmbert Aron hafði meiri heppni með sér fimm mínútum síðar þegar hann skot hans fór af varnarmanni og í slána, stöngina og inn.

Þetta var annað landsliðsmark Hólmberts í hans fjórða landsleik en skoraði einnig á móti Kanada árið 2015.

Það er hægt að sjá markið hans Hólmberts hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×