Lífið

Alda­móta­tón­leikar á Þjóð­há­tíð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gunnar, Birgitta og Hreimur verða öll á sviðinu í Vestmannaeyjum.
Gunnar, Birgitta og Hreimur verða öll á sviðinu í Vestmannaeyjum.

Í morgun voru fyrstu listamennirnir tilkynntir sem koma fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum en þar kemur fram að Emmsjé Gauti og tónlistamennirnir á bakvið Aldamótatónleikana munu til með að koma fram.

Aldamótatónleikarnir hafa heldur betur stimplað sig inn í íslenskt tónleikahald um allt land enda uppselt á alla tónleika um allt land frá því þessi hópur byrjaði að skemmta saman.

Í hópnum eru Gunni Óla, Hreimur, Magni, Birgitta Haukdal og Beggi í Sóldögg sem stíga á stóra sviðið í Herjólfsdal í byrjun ágústmánaðar og flytja öll sín bestu lög.

Hópurinn var á dögunum til umfjöllunar í íslandi í dag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×