Bílar

Árið fer vel af stað hjá Heklu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Audi e-tron
Audi e-tron Vísir/Hekla

Samkvæmt fréttatilkynningu frá bílaumboðinu Heklu fer árið 2020 vel af stað. Umboðið er í efsta sæti í sölu vistvænna bifreiða í janúar með 39,4% af nýjum seldum vistvænum bílum. Volkswagen er með flestar nýskráningar fólksbifreiða í janúar eða 13,5% markaðshlutdeild. Vörumerkið Volkswagen er líka með flestar nýskráningar á heildarmarkaði fólks- og sendibifreiða í janúar, eða 107 bifreiðar í heildina og 13% markaðshlutdeild.

„Meðal hreinna rafbíla slær Audi öðrum merkjum við með 20,3% sölu en þar spila bræðurnir Audi e-tron 50 og Audi e-tron 55 stærsta hlutverkið. Meðal tengiltvinnbíla vermir Mitsubishi efsta sætið með rúmlega 29% markaðshlutdeild og er einnig næst stærsta merkið í sölu til einstaklinga. Mitsubishi Outlander er áfram mest seldi bíllinn til einstaklinga, rétt eins og árið 2019. Nýskráðir metanbílar koma alfarið frá Heklu en þar skipta Volkswagen og Skoda með sölunni með sér,“ segir í tilkynningunni frá Heklu.

Volkswagen og Mitsubishi eru í öðru og þriðja sæti í skráningum til einstaklinga og fyrirtækja. Hekla í heild er í öðru sæti í flestum skráningum í janúar með 206 bifreiðar, eða tæpa 25% hlutdeild á heildarmarkaði. Þá var Volkswagen Polo mest seldi fyrirtækjabíllinn í janúar.

Skoda Superb IV plug-in Hybrid.Vísir/Hekla

Árið 2020

Árið framundan er spennandi hjá Heklu en mikið af nýjungum eru væntanlegar og þar má helst nefna nýjan Skoda Superb iV sem er fyrsti tengiltvinnbíllinn frá Skoda og færir merkið inn í rafmagnaða framtíð. Bíllinn er væntanlegur til landsins áður en febrúarmánuður er úti og bíða Skoda aðdáendur spenntir. Volkswagen eykur enn við úrval rafmagnaðra bifreiða á sumarmánuðum með tilkomu ID. rafbílalínunnar og ný og uppfærð T6.1 lína Volkswagen atvinnubíla sem inniheldur Caravelle, Multivan og Transporter er nú þegar á leiðinni á landsins.

„Við hjá Heklu höfum undanfarin misseri lagt mikið á okkur til að festa okkur enn frekar í huga fólks sem vistvæna umboðið fyrir bíla. Við erum sífellt að auka úrvalið og erum við heppin að merkin sem við seljum samræmast okkar framtíðarhugsjón. Þá höfum við líka lagt mikið í vefverslun aukahluta Heklu sem hefur í dag upp á að bjóða mörg þúsund aukahluta fyrir okkar merki, reiðhjól, bílstóla og margt fleira á góðu verði. Einnig hefur sýningarsalurinn okkar á netinu sem opnaði á síðasta ári stigvaxið í heimsóknum sem er einkar ánægjulegt og gerir fólki kleift að skoða úrvalið okkar hverju sinni hvenær sem er sólarhringsins og heiman úr stofu. Allt þetta spilar skemmtilega saman og hefur skilað okkur á þann góða stað sem við erum á í dag,“ segir Hjördís María Ólafsdóttir vörumerkjastjóri hjá Heklu.


Tengdar fréttir

Árið 2020 hjá Hyundai

Heiðar Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi gerir ráð fyrir aukningu á sölu frá síðasta ári og segir að starfsfólk Hyundai fari bjartsýnt inn í árið. Þá eru margar nýjungar væntanlegar sem tengjast aukinni rafvæðingu.

Árið 2020 hjá Brimborg

Gríðarlega spennandi ár er framundan hjá Brimborg að sögn Anítu Óskar Jóhansdóttur, markaðsstjóra Brimborgar. Hún segir mikla bjartsýni ríkja og að starfsfólk Brimborgar geti ekki beðið eftir að kynna allar nýjungarnar í merkjum Brimborgar sem væntanlegar eru á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×