Viðskipti innlent

Stjórn VR dregur yfirlýsingu sína um Icelandair til baka

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Höfuðstöðvar VR eru í Húsi verslunarinnar.
Höfuðstöðvar VR eru í Húsi verslunarinnar. Vísir/hanna

Tryggi lífeyrissjóðir ekki sjálfsstæði stjórnarmanna sinna að eigin frumkvæði ætlar Seðlabankinn að kalla eftir lagabreytingum um slíkt. Stjórn VR hefur formlega dregið fyrri yfirlýsingu sína um málefni Icelandair til baka. Formaður VR hvatti SA í gær til að gera samkomulag um að hvorugur aðilinn skipi í stjórnir lífeyrissjóða.

Tilmæli stjórnar VR til þeirra stjórnarmanna sem VR skipar í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, um að sniðganga eða greiða atkvæði gegn þátttöku í væntanlegu hlutafjárútboði Icelandair, voru á vefsíðu stéttarfélagsins þangað til síðdegis í dag.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður félagsins, sendi félagsmönnum tilkynningu á þriðjudaginn þar sem hann tekur af allan vafa um að stjórnin vilji bjarga félaginu og ætli að beita sér því að það verði gert. Hann hafi hinsvegar haft miklar efasemdir um að það sé gerlegt með núverandi stjórn félagsins við völd. Þá muni hann leggja það til við stjórn VR að fyrri yfirlýsing um sniðgöngu útboðs verði dregin til baka.

Það gerði stjórnin með annarri yfirlýsingu sem send var út eftir hádegi í dag, en þar segir: „Verkalýðshreyfingin, sameinuð, gekk fastlega fram þegar samningsréttinum var ógnað. Samningsrétturinn er grundvöllur kjarasamninga og stéttarbaráttunnar. Hann er jafnframt grundvöllur fyrir þeim lífskjörum og réttindum sem við teljum sjálfsögð í okkar samfélagi en hafa áunnist með samstöðu vinnandi stétta.“

Ragnar Þór hvatti jafnframt Samtök atvinnulífsins í gær til að gera samkomulag um að hvorugur aðili skipi í stjórnir lífeyrissjóða. SA óskaði í vikunni eftir því að Seðlabankinn grípi til tafarlausra aðgerða, umfram almenn tilmæli til hagsmunaaðila almennt, til að standa vörð um sjálfstæði sjóða og hag sjóðsfélaga.

Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri.vísir/vilhelm

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir „alveg klárt“ að gerði verði úrbætur í þessum efnum. Fjármálaeftirlitið hafi fyrir ári síðan sent tilmæli til lífeyrissjóðanna að endurskoða samþykktir sínar - „til að tryggja sjálfstæði stjórnarmanna. Ég vil fylgja þessu erindi eftir og fá sjóðina til að breyta þessu sjálfir. Ef þeir gera það ekki þá verðum við að fá að breyta lögum,“ segir Ásgeir.

„Mér finnst þetta regluumhverfi í kringum lífeyrissjóðina vera allt of veikt og ekki tryggja sjálfstæði stjórnarmannanna nógu vel. Þannig að það er algjörlega á hreinu að við ætlum að fylgja því eftir.“


Tengdar fréttir

Telur farsælla að stjórn Icelandair verði skipt út

Formaður VR er enn þeirrar skoðunar að ekki sé fýsilegt að fjárfesta í Icelandair með núverandi stjórnendur fyrirtækisins í brúnni. Samtök atvinnulífsins vilja að Fjármálaeftirlitið skoði umdeilda yfirlýsingu formannsins um hlutafjárútboð Icelandair.

Segist ekki hafa verið beittur þrýstingi

Formaður VR segist ekki hafa verið beittur þrýstingi um að draga til baka tilmæli til fulltrúa VR í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna um að sniðganga fyrirhugað hlutafjárútboð Icelandair.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×