Þegar losti og leikgleði mætast í svefnherberginu getur ýmislegt gerst. Eins fim og frábær og við teljum okkur vera í bólfimi þá gerast óhöppin þar eins og annars staðar.
Flest þekkjum við klaufalegar og vandræðalegar sögur af kynlífi þar sem eitthvað festist, einhver dettur eða eitthvað jafnvel brotnar.
Að þessu sinni spyrjum við lesendur Vísis hvort að þeir hafi einhvern tíman slasað sig í kynlífi?
Hér kemur listi yfir nokkur óhöpp/slys sem geta átt sér stað í kynlífi:
-Marblettir og djúpar skrámur
-Meiðsli í mjaðmagrind
-Tognun
-Bakmeiðsli
-Þegar hlutur festist í leggöngum
-Typpabrot
-Útbrot vegna fæðu
-Beinbrot
Fyrir þá sem vilja deila reynslu sinni eða sögum af óhöppum í kynlífi er bent á netfangið: makamal@syn.is.