Makamál

Spurning vikunnar: Viltu hafa ljósin kveikt eða slökkt þegar þú stundar kynlíf?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Makamál velta því fyrir sér hvort að það sé greinanlegur munur á svörum karla og kvenna við þessari spurningu. 
Makamál velta því fyrir sér hvort að það sé greinanlegur munur á svörum karla og kvenna við þessari spurningu.  Getty

Viltu geta horft á manneskjuna sem þú ert að stunda kynlíf með eða kýstu það að hafa slökkt ljósin og jafnvel lokuð augun?

Sumir segja það að horfa í andlit og á líkama manneskjunnar sé órjúfanlegur partur af örvun í kynlífi. Svo eru það aðrir sem segjast upplifa meiri skynjun og örvun með því að sjá ekki neitt.

Það er áhugavert að velta því fyrir sér hvort munur sé á  því hvort að fólk kjósi að hafa kveikt eða slökkt ljós ef það er að stunda kynlíf með makanum sínum eða í einnar nætur gamni.

Spurningu vikunnar er beint bæði að fólki sem er í sambandi og fólki sem er einhleypt. 

Viltu hafa ljósin kveikt eða slökkt þegar þú stundar kynlíf? 

Tekið skal fram að þegar átt er við kveikt ljós er einnig átt við dempaða lýsingu. 

Við veltum því fyrir okkur hvort að það sé einhver greinanlegur munur á svörum kynjanna við þessari spurningu svo að þessu sinni er könnunin kynjaskipt. 

Konur svara hér fyrir neðan: 

Karlmenn svara hér fyrir neðan: 


Tengdar fréttir

„Ég neita að skammast mín fyrir það hver ég er í dag“

„Ég hafði tekið kynhneigð mína til endurskoðunar nokkrum sinnum en þar sem þekking á því hvað kynhneigð er og hvernig hún virkar var ekki næg þá fann ég aldrei neitt út úr því.“ Þetta segir Brynjar í viðtali við Makamál um reynslu sína af BDSM. 

Einhleypan: Útskrifaðist með háði úr leikskóla

„Ég hef ekkert verið að fara á stefnumót enda þykir mér þau einstaklega vandræðaleg og kvíðavaldandi“, segir Einhleypa vikunnar Þórhallur Þórhallson leikari og uppistandari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×