Bílar

Nýr Citroen C4 rafbíll

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nýir Citroen C4
Nýir Citroen C4

Citroen kynnti á dögunum nýjan C4 sem mun koma sem hreinn rafbíll, auk þess að koma í bensín og dísel útgáfum. Þægindi voru sett í forgrunn þegar kom að hönnun bílsins, að sögn Citroen.

Franski framleiðandinn segir að nýi bíllinn eigi að koma í staðinn fyrir C4 Cactus og rafbíllinn mun skila 134 hestöflum.

Bíllinn er ögn hærri en Cactus og er ætlað að brúa bilið á milli hlaðbaka og jepplinga. Rafdrifna útgáfan verður jafnframt fyrsti rafbíll Citroen.

Framkvæmdastjóri Citroen, Vincen Cobée sagði í samtali við Autocar að nýr C4 væri „gríðarlega“ mikilvægur fyrir aukna sölu Citroen í Evrópu. Í fyrra jókst sala á Citroen um 1% og seldust 830.000 nýir Citroen bílar.

Innra rými í nýjum Citroen C4

„Bíllinn verður Citroen inn að beini, hönnunin, nýjungarnar og þægindin. Fyrir okkur er hann einn af þremur eða fjórum stoðum í vexti Citroen. Þessi stærðarflokkur er einn sá vinsælasti,“ sagði Cobée einnig.

C4 hefur 156mm veghæð og litla yfirbyggingu fyrir framan og aftan hjól. Það á að skila sér í betri yfirsýn yfir veginn.

Rafbíllinn

Hinn rafknúna ë-C4 útgáfa mun skila 134 hestöflum frá 50kWh rafhlöðu. Citroen gefur upp um 330 km. drægni. Þá fer bíllinn úr kyrrstöðu og upp í 100 km/klst á 9,7 sekúndum.

Bíllinn kemur með 11 kW hleðslutæki sem getur fullhlaðið bílinn á sjö og hálfum klukkustíma í heimahleðslustöð. Þá er einnig hægt að hlaða hann með 100 kW hraðhleðslutæki og ná 80% drægni á 30 mínútum.

Þægindin

Glussafjöðrun verður staðalbúnaður í nýjum C4 sem á að draga úr hossi og mýkja aksturinn. Þá verður bíllinn búinn ökumannsaðstoð sem nær öðru stigi sjálfvirknivæðingar. Það felur t.d. í sér snjalla hraðastillingu sem heldur jöfnu bili í næsta bíl.

Stjórnborðið kemur með nýjum 10 tommu upplýsingaskjá, sem er snertiskjár. Afþreyingarkerfið mun bæði styðja Android Auto og Apple CarPlay.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×