Rafknúni jepplingurinn MG ZS EV frumsýndur hjá BL Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 25. júní 2020 07:00 MG ZS EV, 100% rafknúinn rúmgóður sportjeppi, mættur með fullt hús öryggisstiga Euro NCAP.
BL við Sævarhöfða frumsýnir á laugardag milli kl. 12 og 16, rafknúna jepplinginn MG ZS EV sem fyrirtækið fékk nýlega umboð fyrir. MG ZS EV er boðinn í tveimur stöðluðum útfærslum, Comfort og Luxury. Á frumsýningunni verða reynsluakstursbílar til taks. Í fréttatilkynningu frá BL segir að MG ZS EV sé með öflugum rafmótor og vatnskældri 44,5kWh rafhlöðu frá CATL sem hægt er að hraðhlaða frá 0-80% á aðeins 40 mínútum. Bíllinn er 8,2 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst. og 3,1 sek úr 0-60 km/klst. Meðaldrægi rafhlöðunnar er 263 kílómetrar (WLTP) og hentar bíllinn jafnt til innanbæjaraksturs sem ferðalaga hvert á land sem er. Bíllinn tekur við 85kW DC hraðhleðslu og 6,6 kW AC heimahleðslu. Innra rými í MG ZS EV Mikill þæginda- og öryggisbúnaður Grunngerðin MG ZS EV Comfort kostar kr. 3.990.000 og MG ZS EV Luxury kr. 4.390.000. Báðar gerðir eru búnar öllum helsta þæginda- og öryggisbúnaði á borð við samhæft afþreyingarkerfi og tækni til verndar farþegum, gangandi og hjólandi vegfarendum enda hlaut bíllinn fyrstu einkunn í prófunum Euro NCAP. MG ZS EV er m.a. með akreinastýringu og akreinavara, hemlaaðstoð og sjálfvirka radarstýrða neyðarhemlun, stöðugleikastýringu, brekkuaðstoð og loftþrýstingsskynjara. MG ZS EV Luxury kemur að auki með 17“ álfelgum í stað 16“ álfelga, stórri Panoramic sóllúgu, bakkmyndavél, regnskynjara á rúðuþurrkum, rafdrifnum framsætum með hita og PU leðuráklæði auk sjálfvirkrar aðfellingar hliðarspegla og tveimur aukahátölurum með Arkamys.
Vistvænir bílar Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent