Leikjavísir

Allar helstu stiklur PS5 kynningarinnar

Samúel Karl Ólason skrifar
Leikja

Sony kynnti í gær nýja leikjatölvu fyrirtækisins, PlayStation 5, sem kemur á markað seinna á þessu ári. Þar að auki kynnti fyrirtækið fjölda leikja sem verða gefnir út fyrir leikjatölvuna og þar af margir sem verða eingöngu gefnir út fyrir PS5.

Hér að neðan má sjá það helsta sem kom fram á kynningarfundinum í gær. (Ég hætti að nenna að skrifa um hverja stiklu fyrir sig þegar á leið við gerð þessarar samantektar. Þið fyrirgefið mér það vonandi.)

Byrjum á leikjatölvunni sjálfri. Hún verður gefin út í tveimur útgáfum til að byrja með og verður önnur útgáfan ekki með geisladrifi. Vert er að ítreka að hægt er að leggja tölvuna á hliðina.

Sjá einnig: PlayStation 5 kemur á markað í ár

Ekkert hefur verið gefið upp varðandi verð tölvanna eða fylgihlutanna.

Grand Theft Auto 5

Sony byrjaði á því að kynna að Rockstar Games væru að vinna að því að breyta Grand Theft Auto 5 fyrir PS5. Það er nokkuð merkilegt þar sem GTA5 kom fyrst út árið árið 2015 og á PS3.  Hann hefur þegar verið endurgerður fyrir bæði PS4 og PC.

GTA5 er dýrasti tölvuleikur sem hefur verið framleiddur en hann varð arðbærasta skemmtanaafurð sögunnar árið 2018 og er hann enn að seljast vel. Til að mynda var hann boðinn ókeypis í leikjaveitu Epic Games á dögunum. Svo margir reyndu að nýta sér tilboðið að leikjaveitan hrundi um tíma.

Nú á sem sagt að endurgera leikinn enn á ný. Forsvarsmenn Rockstar heita því að leikurinn verði „útvíkkaður og endurbættur“ með betri grafík og spilun. Þá stendur einnig til að gefa sérstaklega út fjölspilunarhluta leiksins seinna á næsta ári.

Horizon Forbidden West

Horizon Forbidden West er framhald leiksins Horizon Zero Dawn, sem naut mikilla vinsælda þegar hann kom út árið 2017. Sögu Aloy verður haldið þar áfram þar sem hún þarf að berjast gegn risaeðluvélmennum á nýjan leik, að þessu sinni á vesturströnd Bandaríkjanna.

Fregnir hafa borist af því að Sony hafi gert samning við Guerrilla Games að gera þríleik úr þessum söguheimi og þar að auki verður Zero Dawn gefinn út fyrir PC tölvur í sumar.

Marvel's Spider-Man: Miles Morales

Sony kynnti einnig aukapakka við hinn vinsæla, og einkar góða, Marvel's Spider-Man frá 2018. Sá leikur verður uppfærður fyrir PS5 og honum mun fylgja aukapakki um Miles Morales. Í fyrstu eftir að stiklan var sýnd í gær héldu margir að um nýjan leik væri að ræða en Sony leiðrétti það þó.

Ratchet & Clank: Rift Apart

Hið geysivinsæla tvíeyki Ratchet og Clank snúa aftur. Að þessu sinni virðast þeir þurfa að bjarga fjölmörgum víddum frá eyðingu en fyrsti leikurinn um þá kom út árið 2002 fyrir PS2. Í kjölfarið hafa fjölmargir leikir verið framleiddir en sá síðasti var endurgerð á þeim upprunalega og kom hann út árið 2016.

Gran Turismo 7

Kappakstursserían Gran Turismo er orðin mjög langlíf en fyrsti leikurinn kom út árið 1997. Nú er komið að sjöunda leiknum og sýndi Sony í gær hvernig hann mun líta út. 

Hitman 3

Sjö, fjörutíu og sjö, snýr aftur í þriðja leiknum eftir að serían um launmorðingjan vinsæla var endurræst. Sony sýndi í gær stutta stiklu frá IO Interactive þar sem sjá má 47 eiga smá „bráðin verður rándýrið“ móment í skógi og svo var önnur stikla sýnd þar sem launmorðinginn vinnur að því að drepa einhvern í Dubai.

Resident Evil 8

Capcom vinnur nú að gerð nýs leikjar í Resident Evil seríunni og að þessu sinni ber leikurinn heitið Resident Evil 8 og er hann framhald af RE7, eðli málsins samkvæmt. Um fyrstu persónuleik er að ræða, eins og RE7, og á hann að koma út á næsta ári.

Demon Souls

Starfsmenn From Software vinna nú að því að endurgera fyrsts Souls leikinn fyrir PS5. Stutt stikla var sýnd í gær sem virðist þó ekki sýna neina spilun. 

Deathloop

Sony sýndi einnig áhugaverða stiklu úr leiknum Deathloop, sem er frá sömu aðilum og gerðu Dishonored og Prey. Í stuttu máli sagt, þá setja spilarar sig í spor launmorðingjans Colt. Hann er fastur í tímalykkju á dularfrullri eyju og eina leið hans til að rjúfa lykkjuna er að drepa átta skotmörk á einum degi.

Útlit leikjarins svipar mjög til Dishonored leikjanna, sem er ekki slæmt.

Godfall

Project Athia

Returnal

Sackboy: A Big Adventure

GhostWire: Tokyo

Destruction Allstars

Stray

Kena: Bridge Of Spirits

Oddworld Soulstorm

NBA 2K21

Bugsnax

Astro's Playroom

Little Devil Inside

Solar Ash






Fleiri fréttir

Sjá meira


×