Leik lokið: Danmörk - Ísland 30-31 | Stórkostlegur sigur á heims- og Ólympíumeisturunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron átti stórkostlegan leik.
Aron átti stórkostlegan leik. vísir/epa

Ísland vann stórkostlegan sigur á Danmörku, 30-31, í fyrsta leik sínum á EM 2020.

Aron Pálmarsson átti magnaðan leik. Hann skoraði tíu mörk og gaf níu stoðsendingar.

Staðan í hálfleik var jöfn, 15-15, en íslenska liðið var sterkara í seinni hálfleik. Það komst mest þremur mörkum yfir og var svo sterkara á svellinu undir lokin.

Danir gátu jafnað í lokasókn sinni en Björgvin Páll Gústavsson varði skot Mikkels Hansen beint úr aukakasti.

Ísland er með tvö stig í E-riðli líkt og Ungverjaland.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira