Góð verk dregin fram í dagsljósið Steinunn Stefánsdóttir skrifar 27. febrúar 2008 06:30 Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru veitt í gær. Þetta er í þriðja sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin. Markmiðið með Samfélagsverðlaununum er að beina kastljósinu að þeim góðu verkum sem unnin eru í samfélaginu. Sömuleiðis er athyglinni beint að broti af því fjölmarga fólki sem leggur áþreifanlegan skerf af mörkum til þess að bæta samfélag okkar. Stundum er sagt að í hraða nútímans fari eitthvað af þeim náungakærleik sem við erum flest alin upp við að sýna forgörðum. Þeim mun mikilvægara er að draga fram í dagsljósið eitthvað af öllu því góða og fallega sem fólk gerir af heilum hug alla daga, ekki síst svo það geti orðið öðrum til eftirbreytni. Margir gagnrýna fjölmiðla fyrir að fjalla miklu meira um það sem neikvætt er en það sem er uppbyggilegt og jákvætt. Það má til sanns vegar færa að yfirleitt þykir það fréttnæmara sem úrskeiðis fer en hitt sem gengur vel. Segja má að með veitingu Samfélagsverðlauna sé reynt að vega upp á móti þessu og segja einmitt frá einhverju því sem fer einstaklega vel í samfélaginu. Einnig má líta á Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins sem samtal blaðsins við lesendur sína því hlutur þeirra í aðdraganda verðlaunaveitingarinnar er drjúgur. Að þessu sinni bárust liðlega 300 tilnefningar til Samfélagsverðlaunanna frá lesendum blaðsins og skal þeim hér þakkað fyrir sitt góða framlag til þess að gera Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins að veruleika. Fjölmargar þessara tilnefninga voru bæði góðar og athyglisverðar. Því var vandi dómnefndar nokkur þegar að hennar hlut kom. Þegar svo margar góðar tilnefningar berast getur vandinn að hafna verið mun stærri en vandinn að velja. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru veitt í fjórum flokkum. Fimm samtök og einstaklingar voru útnefnd af dómnefnd í hverjum þessara fjögurra flokka. Auk þess voru veitt ein heiðursverðlaun. Það voru því verk 21 einstaklings og samtaka sem kastljósinu var beint að í tengslum við veitingu Samfélagsverðlaunanna í ár. Fimm þeirra voru verðlaunuð sérstaklega, þrír einstaklingar, ein hjón og ein félagasamtök. Um leið og verðlaunahöfunum, Hjálpræðishernum, menntafrömuðinum Guðrúnu Halldórsdóttur, Herði Torfasyni tónlistarmanni og baráttumanni fyrir mannréttindum, Þorsteini Bjarna Einarssyni og Sigríði Steingrímsdóttur, fósturforeldrum fjölda barna, og Rögnu Marinósdóttur, sem unnið hefur ötullega að málefnum fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra, er óskað hjartanlega til hamingju, er rétt að ítreka að hver og einn hinna sextán sem tilnefndir voru til verðlaunanna, hefðu svo sannarlega verið þeirra verðugir líka. Framlag alls þessa hóps leggur lóð sem um munar á vogarskálar betra samfélags á Íslandi og verðskuldar hlýjar þakkir okkar hinna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Stefánsdóttir Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun