Mannaflsskortur til að taka á duldum auglýsingum Sæunn Gísladóttir skrifar 22. apríl 2017 07:00 Fjöldi áhrifavalda auglýsti bröns á Instagram en tók ekki fram að um auglýsingu væri að ræða
Að mati Tryggva Axelssonar, forstjóra Neytendastofu, er mannaflsskortur til að taka á duldum auglýsingum áhrifvalda á samfélagsmiðlum á borð við Instagram. „Það gefur auga leið að við erum á Neytendastofu með 15 stöðugildi þannig að það er auðvitað skortur og okkar starfsemi er svo víðtæk, það þarf aukin kraft í þessa hluti," segir Tryggvi. Hann segir það sérstaklega vera þannig núna þegar eru að verða til fleiri vettvangar til auglýsinga með tilkomu samfélagsmiðla. „Það eru svo mörg mál og við erum stöðugt að forgangsraða. Það er ekki bara auglýsingar þarna heldur líka verðmerkingaeftirlit. Við erum að fá fleiri og fleiri eftirlitsverkefni. Þetta er mjög víðtæk starfsemi," segir Tryggvi. „Við erum á leiðinni að leggja meiri áherslu á netverlsun og það krefst meiri sérhæfingu og tækjabúnaðar." Greint var frá því í gær að samtökin Public Citizen í Bandaríkjunum hefðu sent yfir 90 erindi til svokallaðra áhrifavalda, Hollywood stjarna, íþróttamanna og módela, til að ítreka að þeir ættu að taka það fram í upphafi hvers innleggs á Instagram ef verið væri að auglýsa vörur. Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu. Fréttablaðið/Vilhelm „Við gáfum út leiðbeiningar árið 2015 og sendum á fjölmiðla og einhverja bloggara. En við höfum ekki farið af stað aftur með svona kynningarátak," segir Daði Ólafsson, lögfræðingur hjá Neytendastofu, aðspurður hvort Neytendastofa hefði gert eitthvað svipað. Hann segir það að hafa gefið út leiðbeiningar hafa gefið góða raun. Hann segir að Neytendastofa sé nú með eitt mál í gangi þar sem var augljóst að tilefni væri til að skoða, en um var að ræða fyrirtæki sem var að auglýsa á Instagram. „Ég get lítið tjáð mig um það en við erum að skoða það út frá því að innleggin hafi ekki verið nægilega vel merkt sem auglýsing, það er forsendan. Þau úrræði sem við höfum er að við getum bannað háttsemi sem er óréttmætir viðskiptahættir. Við getum gefið fyrirmæli um breytingar og við getum líka veitt heimild fyrir notkun ákveðna tiltekinna viðskiptahátta en með skilyrði. Svo eru tvö úrræði í viðbót, sektir og dagsektir." „Þetta er allt spurning um áherslur og hvar við teljum að okkar aðgerðir skili sem mestum árangri, við erum að gera margt annað, en við erum alla veganna með eitt mál í gangi sem athyglisvert verður að sjá hvernig gengur," segir Daði. Hann segir að Neytendastofa hafi fengið mikið af fyrirspurnum frá milliliðum sem hafa verið áhugasamir um hvernig eigi að standa að þessu. „Þó við sjáum að framkvæmdin sé ekki alveg fullkomin þá virðist þetta vera að mjakast í rétta átt miðað við hvernig ástandið var áður," segir Daði. Auglýsingar oft skýrari á bloggum Athygli var vakin á því í byrjun þessa mánaðar að veitingastaðurinn Þrastalundur væri að bjóða mörgum áhrifavöldum á samfélagsmiðlum til sín í bröns. Þegar áhrifavaldar auglýstu svo staðinn í bloggfærslum og á myndum á Instagram var það ekki alltaf tekið skýrt fram. Nokkrar bloggfærslur voru vel merktar en hið sama var ekki að segja um margar Instagram myndir. Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir eða Heidi Ola eins og hún er þekkt, er ein þeirra sem var boðið og bloggaði um staðinn í færslu og setti mynd á Instagram. „Það stendur alveg í blogginu mínu að mér var boðið að koma. Ég skrifa ekki alltaf undir myndirnar á Instagram ég segi bara hvar ég er. Ég held að við megum alveg bara pósta myndum, eins og við viljum, um hvað við erum að gera, það eru hvergi til reglur um það." Hún bætir við að hún taki það fram á Snapchat ef henni var boðið einhvert eða gefið eitthvað.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Vilja borga íslenskum Instagram-stjörnum Sprotafyrirtækið Takumi tengir saman fyrirtæki og íslenska áhrifavalda á samfélagsmiðlum. Gengið hefur vel í Bretlandi og hefst íslensk herferð fyrir jólin. Hlutafé fyrirtækisins var aukið nýlega og stefnir það næst til Bandaríkjanna 25. nóvember 2016 07:00 Flokka Íslendinga eftir áhrifum þeirra Höfundur forrits segir það hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum og að fyrirtækið sé nú þegar komið með milljón manns á skrá. 14. janúar 2017 07:00 Íslendingar blekktir: Duldar auglýsingar daglegt brauð á Snapchat Frægustu snappararnir taka að sér að auglýsa varning. 22. september 2016 10:00 Elín fengið sig fullsadda af óhreinskilni auglýsenda Bloggarinn og förðunarfræðingurinn Elín Erna Stefánsdóttir birti nýverið færslu á Twitter þar sem hún fjallar um duldar auglýsingar sem bloggarar og samfélagsmiðlastjörnur dæla út til fylgjenda sinna í formi meðmæla. Sjálf hefur hún tileinkað sér að vera hreinskilin í allri sinni umfjöllun. 14. mars 2017 12:00 Brönsinn í Þrastalundi á milli tannanna á fólki Auglýsingaherferð Þrastalundar hefur verið umtöluð að undanförnu. 2. apríl 2017 09:00 Mest lesið Gummi Emil tekinn í skýrslutöku lögreglu Innlent Bein útsending: Eurovision-ákvörðun og mótmæli í Efstaleiti Innlent Sæði með krabbameinsvaldandi genagalla selt til Íslands Innlent Krafðist sérlega þungrar refsingar yfir Margréti Höllu Innlent Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Erlent Úlfar þögull sem gröfin Innlent Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Innlent Síðasti loðdýrabóndinn segir Íslendinga verða að vakna Innlent Handtekinn á Akranesi grunaður um nauðgun Innlent Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Erlent Fleiri fréttir Selfoss dreginn til hafnar á Hjaltlandseyjum Reiknar með fljótri og góðri ákvörðun fyrir Ísland Óska eftir vitnum að banaslysinu á Vesturlandsvegi Kalla eftir sérstakri umræðu um málefni skólameistara og framhaldsskóla Bein útsending: Eurovision-ákvörðun og mótmæli í Efstaleiti Tölvuárás á kerfi Grundarheimilanna Úlfar þögull sem gröfin Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Starfsmenn stefna Hval í samvinnu við fyrirtækið Viðgerð á Seyðisfjarðarlínunni muni taka tíma Hvalveiðimenn ætla í hart og örlög Íslands í Eurovision ráðast í dag Róbert vill leiða lista Viðreisnar í borginni Miðflokkurinn ekki undirritað siðareglur og mæting þingmanna sögð frjálsleg Handtekinn á Akranesi grunaður um nauðgun Slökkviliðsstjóri fer í fullt starf hjá almannavarnanefnd Fer ekki aftur fram fyrir Samfylkinguna Gummi Emil tekinn í skýrslutöku lögreglu Nærri 400 leitarbeiðnir vegna 95 týndra barna á árinu Bein útsending: Innflytjendur og samfélagið Aldrei planið að sækja um starfið sem aðrir hafi sótt um gagngert til að kæra Seyðisfjörður á varaafli eftir rafmagnsleysi í nótt Fjarðarheiði lokuð og óvissustig suðaustantil Sæði með krabbameinsvaldandi genagalla selt til Íslands Krafðist sérlega þungrar refsingar yfir Margréti Höllu Tvöföldun seldra nefúða á tíu árum: „Maður pantar töluverðar birgðir reglulega“ Kynna breytta Reykjavíkurleið eftir áramót Ræddu kílómetragjaldið í níu klukkustundir Síðasti loðdýrabóndinn segir Íslendinga verða að vakna Töluvert viðbragð vegna neyðarsendis sem fór af stað fyrir slysni Lagt til að hreindýrakvóti aukist hressilega Sjá meira
Vilja borga íslenskum Instagram-stjörnum Sprotafyrirtækið Takumi tengir saman fyrirtæki og íslenska áhrifavalda á samfélagsmiðlum. Gengið hefur vel í Bretlandi og hefst íslensk herferð fyrir jólin. Hlutafé fyrirtækisins var aukið nýlega og stefnir það næst til Bandaríkjanna 25. nóvember 2016 07:00
Flokka Íslendinga eftir áhrifum þeirra Höfundur forrits segir það hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum og að fyrirtækið sé nú þegar komið með milljón manns á skrá. 14. janúar 2017 07:00
Íslendingar blekktir: Duldar auglýsingar daglegt brauð á Snapchat Frægustu snappararnir taka að sér að auglýsa varning. 22. september 2016 10:00
Elín fengið sig fullsadda af óhreinskilni auglýsenda Bloggarinn og förðunarfræðingurinn Elín Erna Stefánsdóttir birti nýverið færslu á Twitter þar sem hún fjallar um duldar auglýsingar sem bloggarar og samfélagsmiðlastjörnur dæla út til fylgjenda sinna í formi meðmæla. Sjálf hefur hún tileinkað sér að vera hreinskilin í allri sinni umfjöllun. 14. mars 2017 12:00
Brönsinn í Þrastalundi á milli tannanna á fólki Auglýsingaherferð Þrastalundar hefur verið umtöluð að undanförnu. 2. apríl 2017 09:00