Bjóða 10 milljarða í leikfangarisann Hamleys Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 12. desember 2010 18:45
Fjárfestingarsjóður frá Mið-austurlöndum hefur gert tilboð í breska leikfangarisann Hamleys upp á tæpa tíu milljarða króna. Hamleys er í meirihlutaeigu skilanefndar Landsbankans og er vonast til að hægt verði að ganga frá kaupunum í upphafi næsta árs. Í febrúar í fyrra gekk gamli Landsbankinn að veðum vegna dótturfélaga Baugs í Bretlandi, meðal annars í leikfangarisanum Hamleys. Skilanefndin fer nú með um 65% hlut í félaginu. Á þeim tíma sem liðinn er frá yfirtökunni hefur hagur Hamleys vænkast mjög undir stjórn Guðjóns Karls Reynissonar. Salan tók kipp upp á við, verslunum hefur verið fjölgað, ný markaðssvæði könnuð og í ár skilaði reksturinn hagnaði í fyrsta sinn í sex ár. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skilanefnd Landsbankans fengið tilboð í Hamleys sem nemur rúmlega 55 milljónum sterlingspunda eða um 10 milljörðum íslenskra króna fyrir félagið í heild. Væntanlegur kaupandi er fjárfestingarsjóður frá Miðausturlöndum og munu samningaviðræður vera komnar langt á veg. Vonast er til að hægt verði að ganga frá samningum í upphafi næsta árs. Að auki hafa fjölmargir sýnt verslunarkeðjunni Iceland Foods áhuga, sem einnig er í meirihlutaeigu skilanefndarinnar. Meðal áhugasamra kaupenda er fjárfestingarsjóðurinn Global Banking Corporation í Barein. Söluandvirði Iceland er að lágmarki rúmlega 270 milljarðar íslenskra króna.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira