Viðskiptavinur VBS vill að eigendur verði dregnir til ábyrgðar Þorbjörn Þórðarson skrifar 12. desember 2010 19:00
Viðskiptavinur í eignastýringu hjá VBS sem tapaði stórum hluta sparifjár síns segist ekki hafa verið látinn vita að peningar hans væru notaðir til að kaupa skuldabréf sem gefin voru út á fasteignir sem aldrei risu. Hann er afar ósáttur og vill að stjórnendur bankans verði dregnir til ábyrgðar. Ástæðu þess að VBS fjárfestingarbanki lenti í vandræðum má að stórum hluta rekja til þess að bankinn var með einsleita útlánastefnu og lánaði til áhættusamra fasteignaverkefna, þetta segja fulltrúar slitastjórnar bankans. Einn milljarður króna er til skiptanna í þrotabúinu en kröfurnar hljóða upp á 48 milljarða. Meðal útlána bankans voru skuldabréf út á fasteignir sem aldrei risu. Meðal þeirra verkefna sem VBS lánaði til var uppbygging í svokölluðu Laugardælalandi skammt frá Selfossi á vegum félaga í eigu athafnamannsins Engilberts Runólfssonar. Byggingarnar risu aldrei en viðskiptavinir í eignastýringu VBS voru látnir kaupa þessi skuldabréf. „Ég var aldrei spurður að því nema það að manni var sagt að það væri farið út í þessi skuldabréfakaup og alltaf talað um að þetta yrði 100 prósent öruggt," sagði Nói Sigurðsson, viðskiptavinur bankans. Nói segist hafa tapað stórum hluta sparifjár síns. Honum finnst ótrúlegt að lánað hafi verið út á hús sem aldrei risu. „Það er með ólíkindum. Maður trúði þessu bara ekki þegar fréttirnir voru á þennan veginn hreint út sagt," segir Nói. Nói er afar ósáttur og vill að stjórnendur bankans verði látnir sæta ábyrgð. „Það á enga miskunn að að sýna og hefði átt vera búið að taka þessa karla fyrir löngu síðan. Það er mín skoðun," segir Nói að lokum.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira