Sumarið búið hjá Steðja Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. ágúst 2014 14:09 „
Reglugerðir ÁTVR eru bara að þvælast fyrir okkur, eins og vanalega,“ segir Dagbjartur Ingvar Arilíusson eigandi Steðja en sumarbjór fyrirtækisins hættir í sölu eftir helgina – þrátt fyrir að enn sé hásumar. Samkvæmt reglugerð frá árinu 2011 mega árstíðarbundnir áfengisdrykkir, eins og sumarbjórinn, einungis vera í sölu í einn til þrjá mánuði ár hvert en drykkur Steðja kom á markað þann 10. maí síðastliðinn. Á sunnudaginn næstkomandi verða liðnir þrír mánuðir frá því að sumarbjórinn rataði fyrst í hillur Vínbúðarinnar og verður honum því kippt úr sölu eftir helgi. Sumrinu hjá Steða lýkur því á sunnudag. Samkvæmt birgðaskrá ÁTVR í dag, 7. ágúst, kemur fram að á lager í vínbúðum landsins eru 2.398 flöskur af Sumarbjór frá Steðja, eða nákvæmlega 800 lítrar. Verði þessar flöskur ekki seldar fyrir næsta sunnudag verður Steðji Brugghús að sækja flöskurnar og annað hvort að farga innihaldinu eða selja flöskurnar til veitingahúsa ef marka má útreikninga Skessuhorns. Framleiðslan á jólabjórnum fer að hefjast og ekkert pláss verður því á lagernum til að geyma úreltan sumarbjór. Brugghúsið þakkar viðskiptavinum sínum fyrir frábærar móttökur á sumarbjórnum í Facebook-færslu um leið og þeir biðjast afsökunar á mistúlkun þeirra á reglufargani áfengisverslunarinnar. „[V]ið töldum að eftir langan og dimman vetur þá hæfist sumarið á sumardaginn fyrsta og að við fengjum að njóta sumarsins a.m.k. út ágústmánuð“. Post by Brugghús Steðja.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira