Kaupþing stóð rangt að innköllun krafna Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. september 2012 10:29
Kaupþingi var óheimilt að fella niður fimmtán milljóna evra, eða 2,4 milljarða króna, kröfu Irish Anglo bank á hendur Kaupþingi, samkvæmt tilskipun EES. Þetta er niðurstaða EFTA dómstólsins sem gaf álit sitt á málinu í dag. Málið snýst um það að Kaupþing lýsti eftir kröfum í nokkrum dagblöðum á Evrópska efnahagssvæðinu, í Stjórnartíðindum ESB og á vefsíðu sinni eftir hrun bankans. Þar voru kröfuhafar beðnir um að lýsa kröfum innan sex mánaða. Kaupþing hafnaði svo kröfu Anglo Irish Bank, sem nú heitir Irish Bank Resolution Corporation, með þeim rökum að tölvupóstur sem Anglo Irish Bank sendi í lok október 2008 gæti ekki talist kröfulýsing í skilningi laga um gjaldþrotaskipti og laga um fjármálafyrirtæki. Taldi bankinn að fullnægjandi kröfulýsing frá Anglo Irish bank hefði borist of seint. Ekki náðist samkomulag um kröfuna á kröfuhafafundi og því ákvað Anglo Irish Bank að stefna Kaupþingi á þeim rökum að ekki hafi verið fullnægjandi að innkalla kröfulýsingar með auglýsingum í dagblöðum. Telur bankinn að hann hefði átt að fá sérstaka tilkynningu með innköllun kröfulýsingarinnar. Anglo Irish Bank stefndi því Kaupþingi fyrir Héraðsdómstól Reykjavíkur til að fá kröfur sínar viðurkenndar. Úr varð að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA dómstólsins sem komst að þeirri niðurstöðu að samkvæmt 14 grein tilskipunar 2001/24/EB skuli ákvæði landslaga ekki heimila niðurfellingu kröfu þekkts EES-lánadrottins, sem ekki hefur fengið sérstaka tilkynningu um slit lánastofnunar, jafnvel þótt innköllun vegna slitanna hafi verið birt með almennum hætti. Á þessari stundu liggur ekkert fyrir um það hvaða áhrif þessi niðurstaða EFTA dómstólsins hefur á slitameðferð Kaupþings eða annarra banka.
Mest lesið Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Fleiri fréttir „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Sjá meira