Yfir þessu kvörtuðu Kaupþingsmennirnir þrír Aðalsteinn Kjartansson skrifar 11. janúar 2016 15:00
Reiðnámskeið sem stöðvað var á síðustu stundu sem þeir Magnús Guðmundsson, Ólafur Ólafsson og Sigurður Einarsson ætluðu að sækja á meðan þeir afplána refsidóma í fangelsinu á Kvíabryggju er eitt aðalefni kvörtunar þeirra til umboðsmanns Alþingis vegna Páls Winkel fangelsismálastjóra. Umboðsmaður sendi bréf til Páls á gamlársdag þar sem hann óskaði svörum við átta atriðum.Kvörtunin snýst í grunninn um fjögur atriði: ummæli Páls Winkel í fjölmiðlum um séróskir ónafngreindra fanga og að þeir hafi fengið almannatengslaskrifstofu til að eiga samskipti við fangelsismálayfirvöld, leyfi sem kvikmyndagerðarmaðurinn Michael Moore mun hafa fengið til að mynda og taka viðtöl á Kvíabryggju, tilteknum ummælum í Föstudagsviðtalinu um tilraunir til að múta starfsmönnum fangelsismálastofnunar og að lokum upplýsingum um reiðnámskeiðið. Þremenningarnir vildu að nöfnum þeirra yrði haldið leyndum í umfjöllun um málið en umboðsmaður sagði að það samræmdist ekki lagaákvæðum að viðhafa nafnleynd um þá sem standa að kvörtuninni. Því eru þeir nafngreindir í fyrstu línu bréfsins til Páls og fangelsismálastofnunar.Hver vildi rauðvín með matnum? Umboðsmaður vill að Páll skýri fyrir sér hvað hann átti við í samtali við mbl.is þann 10. Október síðastliðinn þegar hann sagði: „Það hafa komið fram beiðnir frá ákveðnum föngum um að neyta rauðvíns og annarra áfengra drykkja með mat við sérstök tilefni. Því er að sjálfsögðu neitað.“ Daginn eftir staðfesti fangelsismálastofnun að engin ósk um rauðvínsneyslu hafi borist embættinu frá fanga sem sæti í fangelsi á Kvíabryggju vegna efnahagsbrota frá árinu 2008.Umboðsmaður vill vita allt um mögulegar rauðvínsbeiðnir.Vísir/Getty ImagesUmboðsmaður vill vita hvort að hvort rétt sé haft eftir Páli í umræddri frétt mbl.is og þá eftir afriti af þeim gögnum sem kunna að vera til um óskir fanga um neyslu rauðvíns og fleira. Tekur umboðsmaður dæmi um að þau gögn gætu verið dagbókarfærslur í fangelsinu. Í sömu frétt og umboðsmaður vill svör við um rauðvínsóskir fanga er haft eftir Páli að tiltekið almannatengslafyrirtæki hafi haft samband vegna fréttarinnar frá 10. október – þar sem fyrst var fjallað um rauðvínsóskirnar. Í viðtali við Kjarnann 21. nóvember síðastliðinn talaði Páll svo aftur um almannatengslafyrirtæki þegar hann sagði: „Ég get ekki eytt miklum tíma í svona athugasemdir aðstandenda eða almannatengslafyrirtækja.“ Í bréfinu vísar umboðsmaður svo til þriðju ummæla Páls um almannatengslafyrirtæki þegar hann var í viðtali við morgunútvarp Rásar 2 þar sem hann sagði: „Ég ætla ekki að tala um það beinlínis en það er lítill hluti fanga sem hefur aðgengi að mörgum milljónum og lítill hluti fanga sem notar almannatengslafyrirtæki til að haf samskipti við mig eða fangelsisyfirvöld. Almannatengslafyrirtæki hefur samband við mig til að biðja mig að segja A, B, og C eða ekki A, B og C og mér bara blöskrar það svo heiftarlega að ég hreinlega varð bara orðlaus.“ Umboðsmaður vill upplýsingar um hvaða tilefni var til þess að hann tók fram að almannatengslafyrirtæki hefði haft samband við sig. Þá vill hann líka fá að sjá samskipti Páls við umrætt almannatengslafyrirtæki og hvað þeir hafi verið að biðja hann um.Moore er einn þekktasti heimildamyndagerðarmaður í heimi.Vísir/EPAMoore myndaði í heilan dag Þeir Magnús, Ólafur og Sigurður kvörtuðu einnig undan því að tökulið á vegum bandaríska heimildamyndagerðarmannsins Michael Moore hafi eytt næstum heilum degi í fangelsinu Kvíabryggju í því skyni að reyna að ná myndum af þeim. Umboðsmaður vill vita hvort Moore eða tökulið á hans vegum hafi fengið leyfi stofnunarinnar til að taka upp í fangelsinu og ræða við fanga um þremenningana sem kvörtuðu. Ef slíkt leyfi hafi verið veitt vill umboðsmaður vita hvernig það samrýmist reglugerðum og stjórnarskrárbundnum rétti fanga til friðhelgi einkalífs. Umboðsmaður vill líka fá að vita hvernig föngum sem voru á Kvíabryggju þegar kvikmyndatökuliðið kom á staðin var kynnt kom þeirra og heimildir til athafna í fangelsinu. Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi sagði Gísli Guðni Hall, lögmaður sem gætt hefur hagsmuna Kaupþingsmannanna í þessu máli, að tökumenn á vegum Moore hefðu bara mætt á Kvíabryggju án þess að fangar hefðu verið látnir vita. Myndatökumennirnir munu hafa myndað inni í fangelsinu í sameiginlegu rými fanga og þá ræddu þeir við aðra afplánunarfanga um Kaupþingsmenn, samkvæmt kvörtuninni. Fjallað var frekar um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag þar sem meðal annars kom fram að afplánunarfangar í fangelsinu á Kvíabryggju hefðu þurft að halda sig inni á herbergjum sínum ef þeir vildu ekki verða myndaðir af kvikmyndatökuliði Moore sem var í heilan dag í fangelsinu. Fréttastofan var búinn að bóka viðtal við einn af föngunum á Kvíabryggju vegna þessarar fréttar en samþykki Fangelsismálastofnunar fékkst ekki fyrir fréttir og því varð ekkert af því.Hér fyrir neðan er stikla fyrir næstu mynd Moore, sem meðal annars er tekin upp hér á landi.Reiðnámskeiðið sem aldrei varð Vísir hefur fjallað ítarlega um reiðnámskeiðið sem stöðvað var á síðustu stundu, samkvæmt Páli sjálfum. Með kvörtun þremenninganna til umboðsmanns fylgdi afrit af tölvupóstsamskiptum Ólafar við forstöðumann Kvíabryggjufangelsisins. Af þeim verður ekki annað ráðið en að Ólafur hafi verið í sambandi við hann frá því í júní um málið. Umboðsmaður vitnar í tölvupóst frá forstöðumanninum til Ólafs 2. nóvember síðastliðinn þar sem segir að fangelsismálastofnun hafi gefið leyfi fyrir námskeiðinu með tilteknum skilyrðum. Umboðsmaður vill afrit af öllum gögnum stofnunarinnar og fangelsisins sem tengjast þessari reiðnámskeiðsbeiðni fanganna. Þá vill hann líka vita hvort föngunum hafi verið veitt leyfi fyrir námskeiðinu og ef svo er, hvernig ummæli Páls um að það hafi verið stoppað af á síðustu stundu samræmist því.Fangelsið Kvíabryggja.Vísir/PjeturVísir birti með umfjöllun sinni tölvupóstsamskipti Páls við rektor Landbúnaðarháskóla Íslands frá 28. október til 2. nóvember. Af því tilefni vill umboðsmaður fá að vita hvort stofnunin hafi sjálf látið Vísi póstana í té og ef svo er á hvaða lagagrundvelli það hafi verið gert. Umboðsmaður vitnar svo í enn einn tölvupóstinn þar sem forstöðumaðurinn á Kvíabryggju segir við Ólaf 28. október: „Vildi að ég gæti tekið allan vafa með þetta [leyfi fyrir reiðnámskeiðinu]. Páll vill fá að skoða þetta betur./ Hann ætlar að reyna að vera með endanlegt svar á föstudag./ Fjölmiðlar eru að undirbúa fár í kringum þetta sem enginn okkar mun koma vel út úr.“ Umboðsmaður vitnar svo strax í orð Páls í morgunútvarpi Rásar 2 11. nóvember þar sem hann sagði að hætt hafi verið við námskeiðið í kjölfar umfjöllunar fjórða valdsins – fjölmiðla – og spyr hvort hvort það það hafi haft áhrif á niðurstöðu stofnunarinnar að „[f]jölmiðlar [væru] að undirbúa fár í kringum þetta sem enginn okkar mun koma vel út úr“.Spa og eitthvert nudd... Síðasta málið sem umboðsmaður spyr um í bréfinu varðar ummæli Páls í morgunútvarpi Rásar 2 þann 11. nóvember en þar var hann spurður um hvað efnaðir fangar biðji um í fangelsin. Páll tiltekur þá nokkur atriði eins og sjónvarpsstöðvar og jógakennslu en það sem umboðsmaður vill vita meira um eru ummælin: „Ég man það ekki það hlýtur að vera spa og eitthvert nudd...“. Umboðsmaður fer fram á í bréfi sínu afritum af gögnum um nudd og spa beiðnir efnuðu fanganna. Kvörtun fanganna snéri einnig að ummælum Páls í Föstudagsviðtalinu í Fréttablaðinu og á Vísi um beinar og óbeinar mútur. Í bréfinu segir að þremenningarnir telji að Páll hafi gefið í skyn beinar og óbeinar mútur og vísað í orðum hans til þeirra sem sæta fangelsisrefsingu tengt hrunmálum. Í viðtalinu sem um ræðir segir Páll að „menn hafa reynt ýmislegt og það hefur nokkrum sinnum gerst, að ég hafi verið á nippinu með það að kæra til lögreglu mútur, en það hefur þó ekki farið þannig yfir línuna enn“ en tekur sérstaklega fram að hann sé alls ekki endilega að tala um tengt hruninu. Umboðsmaður spyr þó engra spurninga um þetta í bréfinu sjálfu.Hægt er að hlusta á Föstudagsviðtalið við Pál hér fyrir neðan.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Sjá meira