Viðskipti innlent

ÍLS hefur afskrifað 8 milljarða hjá tæplega 3.000 heimilum

Sé miðað við þau úrræði sem í boði hafa verið frá 2008 hafði Íbúðalánasjóður (ÍLS) afskrifað í byrjun febrúar í ár rétt tæpa 8 milljarða kr. hjá 2.976 heimilum.

Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn frá Kristjáni Þór Júlíussyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins á Alþingi. Í svarinu kemur fram að mestur hluti afskrifta var vegna 110% leiðarinnar svokölluðu eða 7,2 milljarðar kr.

Þá segir að við afskrift krafna umfram söluverð fasteignar er útbúið glatað veð fyrir fjárhæð umfram söluverðið. Hægt er að sækja um niðurfellingu þess að fimm árum liðnum. Úrræðið er hugsað til þess að liðka fyrir sölu yfirveðsettra eigna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×