Líkur á að Tchenguizmálið muni klúðrast Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. febrúar 2012 14:36 Bræðurnir Robert og Vincent Tchenguiz voru í viðskiptum við Kaupþing.
Líkur eru taldar á að rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar á viðskiptum Tchenguizbræðra við Kaupþing muni klúðrast. Þetta fullyrðir breska blaðið Daily Telegraph á vef sínum. Breska blaðið Daily Telegraph greinir frá því í dag að Serious Fraud Office hefði beðið Vincent Tchenguiz afsökunar á því hvernig staðið var að húsleit í fyrirtæki hans og á heimili hans í mars fyrir ári síðan. Þá hafi jafnframt verið gerð mistök við öflun gagna í málinu gegn Robert Tchenguiz og eðlilegt sé að það mál sé rannsakað. Serious Fraud Office upplýsti í dag að það hefðu verið gögn frá Grant Thornton endurskoðunarskrifstofunni sem urðu til þess að rannsókn á viðskiptum Tchenguiz bræðranna við Kaupþing hefði hafist. Gögnin hafi hins vegar ekki verið skoðuð í samhengi við niðurstöður sem starfsmenn Serious Fraud Office höfðu úr húsleitum í málinu. Telegraph segir að málið sé allt hið vandræðalegasta fyrir Serious Fraud Office sem hafi lagt mikinn mannafla og mikla fjármuni til lausnar á málinu. Á tímabili hafi allt að 20 manns verið að vinna í málinu á vegum stofnunarinnar.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira