Átján fyrirtæki eru með í saltfiskverkefninu 19. apríl 2013 10:22
Átján fyrirtæki hafa þegar gengið til liðs við markaðsverkefnið um að efla sölu á íslenskum saltfisk í Suður Evrópu. Alls verður 50 milljónum króna varið til þessa verkefnis í ár. Fjallað er um málið á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að í gær var skrifað undir samning um markaðsverkefni í Suður Evrópu á íslenskum saltfiski til eins árs. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra undirrituðu samninginn fyrir hönd ríkisins sem leggur til 20 milljónir króna í þetta sameiginlega markaðsverkefni, en framlagið miðast við jafnhátt eða hærra framlag frá öðrum þátttakendum. Fyrirtæki í framleiðslu og útflutningi á söltuðum afurðum til Spánar, Ítalíu og Portúgal eru þátttakendur í verkefninu, sem og þjónustufyrirtæki, og leggja þau fram mótframlag ásamt Íslandsstofu en samtals er fjárhagsáætlun verkefnisins til eins árs 50 milljónir kr. Skjöldur Pálmason formaður Íslenskra saltfiskframleiðenda undirritaði samninginn fyrir hönd fyrirtækjanna og Jón Ásbergsson fyrir hönd Íslandsstofu, en þessir aðilar áttu frumkvæði að verkefninu. Íslenskar saltfiskafurðir eru meðal mikilvægustu útflutningsafurða til Suður Evrópu, en markaðir hafa verið að dragast saman að undanförnu vegna erfiðs efnahagsástands og harðnandi samkeppni. Á fundinum þar sem skrifað var undir samninginn kom fram að þetta verkefni er mikilvægur liður í að móta sameiginlegar markaðsaðgerðir með virkri þátttöku hagsmunaaðila og vonandi vísir að stærra verkefni í sameiginlegu markaðsstarfi fyrir íslenskar sjávarafurðir. Gunnar Tómasson formaður verkefnisstjórnar sagði markmið verkefnisins vera að efla samkeppnisstöðu íslenskra saltfiskafurða og auka verðmætasköpun á mörkuðum.
Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent