Gerviverktaka hjá Þjóðskrá Íslands stöðvuð 19. apríl 2013 15:15
Þjóðskrá Íslands (áður Fasteignaskrá Íslands) hefur með formlegum hætti brugðist við ábendingum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2010. Ábendingarnar vörðuðu verktakagreiðslur til einkahlutafélags sem falið var að stýra tölvudeild Fasteignaskrár. Að mati Ríkisendurskoðunar bar þetta fyrirkomulag ýmis merki svokallaðrar gerviverktöku. Eigandi félagsins var sama ár ráðinn yfirmaður tölvudeildar Fasteignaskrár. Ríkisendurskoðun gerir athugasemd við háar launagreiðslur til hans á árunum 2011 ̶ 2012. Fjallað er um málið á vefsíðu Ríkisendurskoðunar. Þar segir að Í mars 2010 beindi Ríkisendurskoðun tveimur ábendingum til Fasteignaskrár Íslands (nú Þjóðskrá Íslands) vegna verktakagreiðslna stofnunarinnar til tiltekins einkahlutafélags. Samkvæmt verksamningi skyldi félagið m.a. veita tölvudeild stofnunarinnar forstöðu, stýra rekstri gagnagrunna og tölvukerfa hennar og annast ýmsa áætlanagerð í þessu sambandi. Að mati Ríkisendurskoðunar bar fyrirkomulagið ýmis merki svokallaðrar gerviverktöku en í henni felst að einstaklingur þiggur verktakagreiðslur fyrir störf sem í eðli sínu eru venjuleg launavinna. Greiðslur samkvæmt samningnum runnu þannig til nafngreinds einstaklings sem hafði aðstöðu hjá Fasteignaskrá, aðgang að búnaði stofnunarinnar og naut aðstoðar starfsmanna hennar endurgjaldslaust. Fjárhagsleg ábyrgð hans og áhætta af verkinu var því lítil eða engin. Ríkisendurskoðun benti á að Fasteignaskrá Íslands bæri að fylgja reglum skattyfirvalda um þann greinarmun sem gerður er á verktöku og launavinnu. Þá bæri ríkisaðilum jafnan að auglýsa laus störf. Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að Fasteignaskrá hafi þegar árið 2010 gert úrbætur vegna þessara ábendinga. Meðal annars hafi fyrrnefndum verksamningi verið sagt upp og starf forstöðumanns tölvudeildar auglýst. Ríkisendurskoðun lítur svo á að með þessu hafi verið brugðist við ábendingunum með formlegum hætti.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira