Viðskipti erlent

Bankarnir eru aðalsökudólgar fjármálakreppunnar

Bankarnir bera sjálfir sökin á því hvernig fyrir þeim er komið í fjármálakreppunni. Þetta er álit formanns Fjármálaráðsins danska (Finansrådet).

Formaðurinn, Peter Schutze, er jafnframt forstjóri Nordea bankans og hann var ekki að skafa af hlutunum þegar hann ræddi um ábyrgð kollega sinna á fundi ráðsins í morgun.

Jyllands Posten fjallar um ræðu formannsins á ársfundi ráðsins en þar ræddi hann um kæruleysislega útlánastefnu bankanna. "Við voru alltof afslappaðir þegar kom að áhættu, ekki hvað síst útlánaáhættu," segir Schutze.

Hann viðurkennir að fjármálakreppan sé ekki heimatilbúinn danskur vandi en segir jafnframt að fleiri bankastjórar hafi ekki tekið málin föstum tökum þegar á reyndi. "Þeir voru alltof linir þegar kom að útlánastefnu og útlánastýringu," segir Schutze.

Danir hafa verið í tiltekt í bankakerfi sínu síðan að fjármálakreppan skall á. Þar á meðal hafa kröfur til endurskoðenda verið stórauknar. Gera bankarnir nú kröfu um að endurskoðendur þeirra afli sér endurmenntunnar í bókhaldi banka.

Svona eftir á að hyggja gæti Schutze allt eins verið að tala um íslenska bankahrunið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×