Engin samdráttur í jólaversluninni þrátt fyrir kreppuna 8. desember 2008 11:57
Kaupmenn segjast, þrátt fyrir kreppu, ekki finna fyrir samdrætti í jólaverslun. Skýringu á því gæti verið að finna í að Íslendingar kaupa nú gjafir í verslunum hérna heima í stað þess að ferðast í stórum flokkum erlendis til að kaupa gjafirnar eins og tíðkaðist fyrir kreppu. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að við þetta bætist aukin kaupgleði erlendra ferðmanna. Þetta gefur til kynna að viðsnúningur verði á þjónustujöfnuði við útlönd en halli á þjónustujöfnuði hefur verið einn þáttur í viðvarandi viðskiptahalla undanfarin ár. Þá hefur gengisþróun þau áhrif að þeir erlendu ferðamenn sem koma til landsins versla meira en áður eins og glögglega hefur komið fram í aukningu á endurgreiðslu á virðisaukaskatti á undanförnum mánuðum. Nýjar tölur Seðlabankans sýna að þessi viðsnúningur er nú þegar hafinn, en þjónustujöfnuður við útlönd var neikvæður um 1,6 milljarða kr á 3. ársfjórðungi þessa árs sem er mun minni halli en hefur verið á sama fjórðungi undanfarin ár. Búast má við að allhröð sókn verði í átt til jafnvægis í þjónustujöfnuði rétt eins og í vöruskiptum. Frá því að kreppan braust út í byrjun október hefur utanlandsferðum Íslendinga fækkað um tæplega helming. Alls fóru 45 þúsund Íslendingar að utan um Leifsstöð í október og nóvember á þessu ári, en til samanburðar var þessi fjöldi 83 þúsund á sama tímabili fyrir ári síðan. Í nóvember fækkaði brottförum Íslendinga um 60% frá sama mánuði fyrir ári síðan.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira