Viðskipti innlent

Bankasýslan gegn launahækkun í Arion banka

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Stjórnarformaður Arion banka fær 750 þúsund á mánuði.
Stjórnarformaður Arion banka fær 750 þúsund á mánuði. Vísir/Pjetur
Fulltrúi Bankasýslu ríkisins greiddi atkvæði gegn tillögu í stjórn Arion banka um að hækkun á þóknun stjórnarmanna á aðalfundi bankans.

Á fundinum var samþykkt að þóknun til stjórnarmanna verði 375.000 á mánuði fyrir almenna stjórnarmenn, 562.500 fyrir varaformann stjórnar og 750.000 fyrir stjórnarformann. Þá fá varamenn 187.500 fyrir hvern setinn fund, þó að hámarki kr. 375.000 á mánuði ef um fleiri en einn fund er að ræða. Í tilviki erlendra stjórnarmanna skulu framangreindar tölur vera tvöfaldar. Þar að auki verði heimilt að greiða þeim stjórnarmönnum sem sitja í stjórnarnefndum félagsins að hámarki kr. 150.000 á mánuði fyrir setu í hverri nefnd og formönnum stjórnarnefnda kr. 195.000 á mánuði. Tillagan var samþykkt með meiri hluta atkvæða.

Ásamt því að greiða atkvæði gegn tillögunni óskaði fulltrúi Bankasýslunnar eftir að eftirfarandi bókun yrði lögð fram:

„Bankasýsla ríkisins sem fer með hlut íslenska ríkisins greiðir atkvæði gegn tillögu um þóknun til stjórnarmanna Arion banka hf. Bankasýslan telur að hækkun sú á þóknun stjórnarmanna sem felst í umræddri tillögu samræmist ekki eigendastefnu ríkisins. Jafnframt ítrekar stofnunin fyrri bókanir um mikilvægi þess að jafnræðis sé gætt á milli stjórnarmanna hvort sem þeir hafa aðsetur á Íslandi eða ekki. Óskar Bankasýsla ríkisins eftir því að framangreint sé bókað í fundargerð aðalfundar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×