Löggjöf um tímafresti á slitameðferð banka í undirbúningi Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. mars 2014 19:06
Fjármála- og efnahagsráðherra segir til skoðunar í fjármálaráðuneytinu að vinna frumvarp til að setja ákveðna tímafresti á slitameðferð föllnu bankanna. Nái kröfuhafarnir ekki að ljúka nauðasamningum sé ekkert annað að gera en fara með bú þessara banka í hefðbundið gjaldþrot. Þetta kom fram á ársfundi Seðlabanka Íslands í dag en fjármála- og efnahagsráðherra var meðal framsögumanna á fundinum. Ráðherrann benti réttilega á í ræðu sinni að uppgjör þrotabúa föllnu bankanna væri nátengt afnámi gjaldeyrishaftanna. „Vandi slitabúanna og möguleg neikvæð áhrif þeirra á stöðugleika efnahagslífsins er meðal helstu ástæðna þess að hægt hefur gengið að afnema fjármagnshöftin. Því er mjög brýnt fyrir Ísland að þetta mál leysist farsællega,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Vandinn sem ráðherrann vísaði til tengist m.a. krónueign slitabúa föllnu bankanna en krónur í eigu þeirra ógna fjármálastöðugleika á Íslandi. Svokallaðar „kvikar krónur,“ í höndum erlendra aðila eru nú um fimmtungur landsframleiðslu Íslands og gætu farið upp í nærri hálfa landsframleiðslu ef krónueignir búa föllnu bankanna yrðu að fullu innheimtar og greiddar kröfuhöfum. Íslenska þjóðarbúið hefur hins vegar engan afgang af gjaldeyristekjum til að leysa út þessar krónustöður, eins og Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, vék að í sinni ræðu á fundinum í dag. Slitameðferð föllnu bankanna tekið of langan tíma Bjarni Benediktsson ítrekaði í dag það sem hann hefur sagt áður um að stíga mætti stór skref á þessu ári til að auðvelda afnám haftanna, en hann sagði slitameðferð föllnu bankanna hafa tekið alltof langan tíma. „Rétt (er) að hafa í huga að líftími slitabúanna getur ekki verið endalaus. Erlendis eru dæmi um að veittur sé 3 ára frestur, t.d. í Bandaríkjunum, til að ljúka slitum, sem hægt er að framlengja í allt að 5 ár samtals við sérstakar aðstæður. Gömlu bankarnir hafa nú þegar verið meira en 5 ár í slitaferli. Ef kröfuhafarnir ná ekki að ljúka nauðasamningum er ekki annað að gera en að fara með búin í gjaldþrot. Að auki verður að taka fram, að það að eignarhald íslenskra fjármálafyrirtækja sé með þeim hætti sem verið hefur, er ástand sem getur ekki orðið viðvarandi, óháð fjármagnshöftum."Skylt að fara í gjaldþrot ef nauðasamningum er hafnað Samkvæmt ákvæðum um slitameðferð í lögum um fjármálafyrirtæki (m.a. 3. mgr. 103. gr. laganna) er slitastjórn skylt að krefjast þess fyrir héraðsdómi að bú viðkomandi fjármálafyrirtækis verði tekið til gjaldþrotaskipta ef nauðasamningum er hafnað. Hins vegar virkjast þetta ákvæði bara við þessar aðstæður, þ.e. höfnun nauðasamnings. Ekki eru skýr ákvæði um hvernig eigi að fara með það óbreytta ástand sem nú varir, þ.e. ekki hafa verið greidd atkvæði um nauðasamninga Kaupþings og Glitnis og slitameðferð þessara banka er í biðstöðu, að því er virðist með vilja eigenda búanna, þ.e. kröfuhafanna. Það er þetta sem Bjarni Benediktsson er að vísa í, að þessi staða geti ekki verið óbreytt árum saman. Sérstaklega ekki þegar jafn ríkir almannahagsmunir eru undir og raun ber vitni um að ljúka slitum þessara banka.Kemur til greina að breyta lögum til að flýta fyrir slitameðferðinni og eftir atvikum setja þessa banka í hefðbundið gjaldþrot? „Það kemur fyllilega til greina að skoða lagabreytingar til að tryggja þetta. Nú er ljóst að þessi fyrirtæki hafa verið í slitameðferð í fljölda ára og lengri tíma en lög í öðrum löndum gera ráð fyrir að slík slitameðferð geti tekið í heildina litið,“ segir Bjarni. Hann segir til skoðunar í fjármálaráðuneytinu að setja lög sem setji slitameðferðinni endimörk í tíma. „Þetta er meðal þess sem við erum að skoða. Þetta er ekki frumvarp sem myndi enda slitameðferðina samhliða samþykkt laganna heldur gefa einhvern eðlilegan tíma til að ljúka slitameðferð að breyttum lögum.“
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira