Viðskipti innlent

Sá viðsnúningur sem felst í mati Standard and Poor's veruleg vonbrigði

Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar
Steingrímur J. Sigfússon, fyrrum fjármálaráðherra, segir þann viðsnúnining sem felst í mati Standard og Poor‘s  vera veruleg vonbrigði fyrir íslenska ríkið. „Við höfum auðvitað verið að vonast eftir hinu gagnstæða, að við sæjum fram á batnanadi lánshæfismat samfara efnahagsbatanum og traustari stöðu landsins,“ segir hann.

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, tekur í sama streng  og segir matið sýna fram á að það sé ekki bara stjórnarandstaðan sem skilji ekki upp eða niður hvað ríkisstjórnin er að fara eða hvernig á að vera hægt að láta skuldaniðurfellingu heimilanna virka. Ríkisstjórninni hafi greinilega algjörlega mistekist að útskýra það fyrir lánsmatsfyrirtækjunum . „Og það fer þá að verða stóra spurningin: Hvar eru þessi plön og hvernig á þetta að geta gengið upp? Því að ríkisstjórnin virðist ekki hafa neina hugmynd um það og er bara búin að setja þetta í nefnd fram á haust,“ segir hann.

Steingrímur er á því að matið eitt og sér sé ekki nein stór tíðindi en hreyfinguna í öfuga átt og rökstuðninginn hljóti stjórnvöld að þurfa að taka alvarlega. Hann segir hættuna á því að miklar viðbótarskuldbindingar lendi á ríkinu vegna þessara gríðarlegu loforða sem að ríkisstjórnin gaf út.

Árni Páll lítur á matið sem viðvörunarskot. „Við getum ekki leyft okkur hvað sem er og við verðum að gæta að stöðu landsins, hún er mjög viðkvæm og við erum skuldug þjóð.  Það er ekkert gefið að okkur takist að halda rétt á spöðunum,“ segir hann.

Steingrímur hvatti ríkisstjórnina til þess að staldra við í vor og bíða með loforð um niðufellingu þar til hún hefði séð heildarmyndina fyrir sér. „Þetta hljóta að vera nýrri ríkisstjórn mikil vonbrigði  að hún fer þannig af stað í sínum fyrstu skrefum í ríkisfjármálum og efnahagsmálum að hún mætir þegar gagnrýni frá aðilum eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, matsfyrirtækjum og greiningaraðilum,“ segir hann að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×