Gagnrýna ákvörðun Standard & Poor's Höskuldur Kári Schram skrifar 26. júlí 2013 19:22
Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra segir að ákvörðun matsfyrirtæksins Standard & Poor's um að breyta lánshæfishorfum íslenska ríkisins úr stöðugum í neikvæðar hafi ekki áhrif á þau áform ríkisstjórnarinnar að lækka skuldir heimilanna. Matsfyrirtækið óttast að þetta kunni að skaða ríkissjóð og traust erlendra fjárfesta á Íslandi. Lánshæfismat ríkissjóðs er óbreytt bæði hvað varðar skammtíma og langtíma skuldbindingar en matsfyrirtækið breytir hins vegar horfunum úr stöðugum í neikvæðar. Þessi breyting þýðir að ríkissjóður er aðeins einu þrepi frá því að lenda ruslflokki. Standard og Poor's telur að boðaðar niðurfærslur á verðtryggðum skuldum heimilanna kunni að leiða til verri afkomu ríkissjóðs. Verði skuldaniðurfærslan fjármögnuð með afskriftum skulda gömlu bankanna við lánadrottna gæti það skaðað traust erlendra fjárfesta á Íslandi. Þá sé ekki útilokað að skuldir einkageirans verði færðar yfir á hið opinbera með verulega neikvæðum afleiðingum fyrir ríkissjóð. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, gagnrýnir þetta mat en segir hins vegar mikilvægt að lánshæfiseinkunn Íslands haldist óbreytt. „Mér finnst þeir fara dálítið fram úr sér þegar þeir meta forsendur fyrir horfunum. Þeir fara að mínu mati fra úr sér með því að áætla að aðgerðir vegna skuldsettra heimila muni íþyngja ríkissjóði um of eða menn muni standa þannig að afnámi haftanna að það muni skaða orðspor Íslands. Það er engin ástæða til að ætla þetta,“ segir Bjarni. Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra tekur í sama streng og segir að þetta muni ekki breyta áformum ríkisstjórnarinnar að lækka skuldir heimilannna. „Það sem þetta segir okkur er að það kann að vera að hagsmunir heimilanna, hagsmunir íslenska þjóðarbúsisins og hagsmunir kröfuhafa fari ekki saman í þessu máli og það hefur legið fyrir í langan tíma,“ segir Eygló.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent