Viðskipti erlent

Efnahagsáætlanir Obama hækka heimsvísitöluna

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun og telja greiningaraðilar að það megi þakka áætlunum nokkurra ríkisstjórna allt frá Bandaríkjunum til Indlands um örvun efnahagslífsins með ýmsum hætti. Heimsvísitala MSCI hækkaði um 5,5 prósentustig og er talið að þakka megi þá hækkun yfirlýsingum Baracks Obama um efnahagsumbætur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×